HÚSASJÁ

Vesturhús 20

01-0101 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
40 myndir

248 m²

Stærð

2

Herbergi

6

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

1994

Byggingarár

711 m²

Lóð

Sérinngangur

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Auka íbúð



215 dagar á sölu

sell

139.900.000 kr

565.024 kr/m²

FASTEIGNASALAN TORG KYNNIR: STÓRKOSTLEGT ÚTSÝNI - ÍBÚÐ Á TVEIMUR HÆÐUM MEÐ BÍLSKÚR Í TVÍBÝLI Í RÓLEGU OG FJÖLSKYLDUVÆNU HVERFI: MIKIL LOFTHÆÐ - STÓRIR NÝIR ÚTSÝNISGLUGGAR. Íbúðin skiptist í forstofu, sameiginlegt rými með eldhús og stofu/borðstofu, sjónvarpshol, 3 svefnherbergi, rúmgott gluggalaust herbergi með lofttúðum, miðjurými, gestasnyrtingu og stórt baðherbergi. Inn af forstofu er þvottahús og þaðan er innangengt í bílskúr. Hleðslustöð.  Hitalagnir í stétt við inngang. Húsið er staðsett syðst í hlíðum húsahverfis í Grafarvogi, í fallegu og grónu umhverfi og með stórkostlegt útsýni til suðurs, allt frá Bláfjöllum og út á sundin. Húsaskóli, sundlaug,  leikskóli og skíðabrekka í næsta nágrenni. Sérstök og falleg íbúð sem vert er að skoða. Bókið skoðun og fáið nánari upplýsingar hjá Jóhönnu Kristínu Tómasdóttur, lgfs. í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is

Nánari lýsing: Húsið er tvíbýli, steinsteypt og byggt 1994. Komið er inn í forstofu, þá forstofuhol og á vinstri hönd eru 2 svefnherbergi og stigi niður á neðri hæð. Þvottahús er innaf forstofu og innangengt í bílskúr. Stórt baðherbergi til vinstri inn af forstofuholi. Gengið upp 3 þrep og þá er sjónvarpshol til vinstri og upp önnur þrjú þrep er komið í stofu/borðstofu og eldhús. Stórir gluggar með miklu útsýni og útgengt á tvennar svalir. Úr forstofuholi liggur stigi niður á jarðhæð og þar er millirými, nú nýtt sem skrifstofa, hjónaherbergi með fataherbergi, og gluggalaust barnaherbergi með loftskiptikerfi. Gestasnyrting.

Forstofa: Með flísum á gólfi og fjórföldum fataskáp. Þvottahús á hægri hönd þaðan sem er innangengt í bílskúr.

Þvottahús: Ágætlega rúmgott með plastparketi á gólfi. Innangengt í bílskúr með geymsluaðstöðu í gryfju og háalofti.

Baðherbergi: Mjög rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, baðkari og sturtuklefa. Skúffuinnrétting við vask. Auk þess er hár skápur og annar lægri við vegginn á móti. Innfelld lýsing að hluta.

Svefnherbergin: Tvö svefnherbergi, ágætlega rúmgóð bæði með fataskápum og háum rúmum. Harðparket á gólfi.

Sjónvarpshol: Á millipalli með flísum á gólfi. Tengi fyrir gervihnattamóttakara. Útgengt á svalir og yfirbyggðan pall.

Eldhús/stofa/borðstofa: Stórt opið og bjart rými með mikilli lofthæð og stórum gluggum með stórkostlegu útsýni. Sprautulökkuð eldhúsinnrétting með eyju og góðu skápaplássi. Flísar á gólfi eldhúss. Granít borðplötur og granít á vegg við vask. Stofan er mjög björt og rúmgóð með viðarpanel á hluta veggs. Harðparketi á gólfi. Útgengt á suðvestursvalir.

Jarðhæð: Gengið niður úr forstofuholi. Á jarðhæð er millirými, sem nýtt er sem skrifstofa, tvö svefnherbergi og snyrting.

Hjónaherbergi: Með litlum glugga og góðu fataherbergi innaf.

Barnaherbergi: Mjög rúmgott herbergi, gluggalaust en með lofttúður í loftinu.

Snyrting: Með salerni, vaski og lítilli innréttingu.

Garður: Gróinn suðurgarður.

Viðhald: 2023 voru útsýnisgluggarnir algjörlega endurnýjaðir, þ.e. bæði gluggi og gler. Í þakglugga var sett nýtt gler sl. sumar. Nýlega voru frárennslislagnir lagðar úr eldhúsi og þvottahúsi á neðri hæðinni út í brunn. Raflagnaefni var endurnýjað fyrir tveim árum. Múr var lagfærður og húsið málað að utan nýlega.

Falleg sérhæð með mikilli lofthæð, stórum útsýnisgluggum og fjórum svefnherbergjum í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Grafarvoginum. Göngustígar í allar áttir og stutt í skóla og leikskóla. Víðátturmikið útsýni yfir borgina. Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, lgfs. Í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari

ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Vesturhús 20

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu