HÚSASJÁ

Baughús 26

01-0101 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
45 myndir

236 m²

Stærð

8

Herbergi

4

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

1991

Byggingarár

853 m²

Lóð

Garður

Bílskúr

Þvottahús

Auka íbúð



46 dagar á sölu

sell

158.900.000 kr

671.314 kr/m²

Eignamiðlun kynnir:

Eignamiðlun og Rögnvaldur Örn Jónsson löggiltur fasteignasali kynna Baughús 26, fallegt einbýlishús á góðum og rólegum stað í Grafarvogi.  Húsið er á tveimur hæðum og er samtals 236,7 fm og þar af er bílskúr 42 fm.

Að auki er um það bil 65 fm óskráð rými á neðri hæð með sér inngang.  Auðvelt væri að setja þar aukaíbúð eða stækka húsið.  Nýlegt gler er í öllu húsinu og rafmagn hefur verið endurnýjað í húsinu.  Húsið skiptist í anddyri, stóra stofu, borðstofu, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, snyrtingu, þvottahús, eldhús og bílskúr.   Stór bílskúr og hiti í plani.

Nánari lýsing eignarinnar:

Efri hæð:

Anddyri er stórt og með góðu fatahengi.  Flísar á gólfi. Snyrting inní anddyri/holi.

Hol/borðstofa er með flísum á gólfi, skemmtilegt útsýni er úr borðstofunni.  Sjónvarpshol er innaf borðstofu og er með sömu flísum.

Stofa er stór með afar fallegu gegnheilu parketi.  Fallegur arinn er í stofu og þá er útgengi úta svalir.

Eldhús er með sömu flísum og borðstofa.  Í eldhúsinu er eldri innrétting en í lagi.

Þvottahús er innaf eldhúsi með flísum á gólfi og með innréttingu.  Útgengt út í garð.

Tvö svefnherbergi eru á hæðinni, annað með flísum á gólfi og hitt með parketi.  Fataskápar í hjónaherbergi og sérsmíðaðar hillur í forstofuherbergi.  Baðherbergi er innangengt úr hjónaherbergi og er nýlega tekið í gegn, flísalagt með walk in sturtu, upphengdu klósetti, handklæðaofni og innréttingu.  Innbyggð tæki í sturtu.

Neðri hæð:

Fallegur stigi er niður á neðri hæð og er parketlagður með sama parketi og í stofu.  Á neðri hæðinni eru tvö svefnherbergi, baðherbergi ásamt góðu holi.  Komið er niður í hol sem er með sama parket og í stofu og stiga.  Herbergin eru tvö og eru bæði með parketi.

Baðherbergi er allt nýtekið í gegn.  Flísalagt með baðkari með sturtu, upphengdu klósetti, innréttingu og handklæðaofni.  Hol er rúmgott með góðum fataskáp.  Útgengt er út á pall/garð frá holi.

Bílskúr er stór eða 42 fm með steyptri plötu, heitu og köldu vatni, þriggja fasa rafmagn og hurð með rafmagnsopnara.  Full lofthæð er í ósamþykkta rýminu og aðgangur að öllum lögnum.

Lóðin er falleg og gróin með hellulögðu plani.  Góðir pallar við húsið.

Nýbúið að skipta um allt gler í húsinu ásamt öllum gluggalistum og stormjárnum.  Á þaki eru steinflísar sem eiga að duga í langan tíma.

Fyrir ca. 6 árum var rafmagn endurnýjað á neðri hæð og fyrir ca 20 árum var rafmagn á efri endurnýjað.

Fallegt hús þar sem stutt er í alla þjónustu og stutt í stofnbrautir.

Nánari upplýsingar veitir Rögnvaldur Örn Jónsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6603452, tölvupóstur rognvaldur@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Kort af Baughús 26

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu