HÚSASJÁ

Vallarhús 11

01-0203 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
45 myndir

120 m²

Stærð

5

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1990

Byggingarár

1448 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla

Þvottahús



3 dagar á sölu

sell

79.900.000 kr

664.725 kr/m²

Trausti fasteignasala kynnir eignina Vallarhús 11, 112 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 02-03, birt stærð 120.2 fm.

Gildandi fasteignamat 2026 er 83.400.000 kr

Smelltu hér til að fá söluyfirlit

Fjölskylduvæn íbúð með sérinngangi á 2. hæð. Íbúðin skiptist í stofu og borðstofu, eldhús, gestasnyrtingu og þvottahús á neðri hæðinni. Á efri hæðinni eru þrjú svefnherbergi ásamt mjög rúmgóðu baðherbergi, með háalofti/geymslu sem hægt er að útbúa aukaherbergi.

Nánari lýsing,

Neðri hæð

Forstofa/Anddyri með ofn og flísum á gólfi.

Þvottahús, gengið úr forstofu, með opnanlegum glugga, með hillum, ofni og dúk á gólfi

Hol, með fatahengi, fallegur viðarstigi er upp á efri hæð og dúkur á gólfi

Eldhús er með upprunalegum hvítum og viðarlituðum innréttingum. Borðkrókur og dúkur á gólfi

Gestasnyrting er í holinu með dúk á gólfi

Stofa og borðstofa, búið er að setja vegg milli stofu og stigans. Gengið frá stofu út á rúmgóðar svalir, sem voru endurnýjaðar og stækkaðar fyrir nokkrum árum.  Dúkur á gólfi

Efri hæð

Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum, aðeins undir súð, með dúk á gólfi

Herbergi I er með fataskáp, aðeins undir súð og dúk á gólfi.

Herbergi II er með fataskáp, aðeins undir súð og dúk á gólfi

Baðherbergi er rúmgott, aðeins undir súð með baðkari og nýlegum sturtuklefa. Innrétting með vaski.  Flísar á gólfi og hluta til á veggjum

Stigapallur er teppalagður og uppgengt er frá honum uppí háaloft

Geymsla/háaloft gengið frá stigapalli, með útdregnum stiga.  Er rúmgott með opnanlegum þakglugga og ofni, sem gefur möguleika á að gera auka herbergi.

Gott hús og vel skipulögð eign á góðum stað í Grafarvogi þar sem mjög stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla, skóla, sundlaug, íþróttamiðstöð, verslun ofl.  Þetta er íbúð á annarri og þriðju hæð í góðu fjölbýli með sérinngangi. Íbúðin er að mestu í upprunalegu ástandi.  Sturta í baðherbergi var tekin í gegn 2023, hitastillingar og inntök á ofnum endurnýjað 2023.

Eitt merkt bílastæði og gestastæði fylgir eigninni.

Nánari upplýsingar veitir Elísabet Guðmundsdóttir aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 822-4848, elisabet@trausti.is og Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali í síma 8673040Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Vallarhús 11

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð