HÚSASJÁ

Grasarimi 20

04-0101 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
45 myndir

194 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1992

Byggingarár

2664 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



187 dagar á sölu

sell

144.900.000 kr

748.064 kr/m²

Landmark fasteignamiðlun kynnir:

Einstaklega fallegt og talsvert endurnýjað og vel við haldið raðhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr á þessum vinsæla stað í Grafarvogi.  3 rúmgóð svefnherbergi og auðvelt að bæta 4 við.  Fallegur garður með stórri suðurverönd með gróðurhúsi. Mikil lofthæð og frábært skipulag.  Stórt hellulagt bílaplan fyrir framan eign.  Innréttingar frá Axis.  Stutt í alla helstu þjónustu og skóla.  Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, 2 baðherbergi, þvottahús, miðrými, sjónvarpshol, eldhús, stofu, borðstofu og bílskúr.

Einnig er frístandandi 14,9 fermetra sólstofa/gróðurhús í garðinum og er ekki inn í fermetra tölunni.

Skv. þjóðskrá er eignin skráð:  íbúðarhluti 166,4 fm. og bílskúr 27,3 samtals:  193,7 fm.

Nánari upplýsingar veitir:

Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 770-0309 eða th@landmark.is

Sveinn Eyland lögg. fast.

Nánari lýsing:

Forstofa:  Forstofa með náttúruflísum á gólfi og rúmgóðum fataskáp frá Axis.

Miðrými:  Rúmgott með vínylparket á gólfi

Björt stofa / borðatofa, hátt til lofts, nýlegt vínylparket á gólfi (Ca 3 ár síðan það var lagt)  steyptur stigi upp efri hæð og gangur/sjónvarpshol er lagt með sama vínylparketi.

Gólfhiti er að hluta af stofu. Útgengt úr stofu í góðan garð sem snýr suður. Frístandandi gróðurhús ca 14,9 fm sett upp júlí 2023

Lítill garðverkfæraskúr/skápur frá Costco.

Pallur við hús er eldri, en hinir tveir og veggir á milli garða eru byggðir 2017.  Gróðurhús og flott grillaðstaða.

Eldhúsið með náttúruflísum á gólfi, eldavél og bakaraofn í vinnuhæð (bæði tækin keypt fyrir 7-9 árum) Innbyggður ísskápur ca 7 ára gamall. Hiti í gólfi í eldhúsi. Mjög rúmgóður borðkrókur.

Góð eikarinnrétting frá Axis en efri skápar eru sprautulakkaðir.

Gestaklósett á neðri hæð er með náttúruflísum. Nýleg innrétting - efri skápur frá Ikea og vaskaskápur með vaski frá Bauhaus (ca 2-3 ára) Upphengt salerni.

Rúmgott þvottahús með náttúruflísum á gólfi - innrétting og vaskaborð, gott pláss fyrir þvottavél og þurrkara, ágætt geymslupláss.

Gengið er inn í bílskúr með lökkuðu gólfi, rafmagnshurðaopnari, ágætis geymslupláss í bílskúr (hillur)

Hiti er í plani fyrir framan bílskúr og stæði fyrir 2 bíla.

Á efri hæð er baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, gólfhiti á baði. Baðkar, sturta, upphengt salerni, baðinnrétting frá Axis.

Rúmgott hjónaherbergi með linoleum dúk á gólfi, í hjónaherberginu er lítið fataherbergi, fyrir ofan fataherbergið er ágætis geymsla (hillur)

Útgengt á litlar svalir í norður.

Tvö barnaherbergi með linoleum dúk á gólfum og eikarskápum frá Axis

Á efri hæð er sjónvarpshol með vínylparket

Skipt var um þak 2004 og settir nýir þakgluggar.

Búið að skipta um hluta af gleri fyrir 3 árum, fyrri eigendur einnig skipt um hluta af rúðum.  Nokkrar rúður með móðu á milli.

Öll lengjan var máluð að utan 2016.

Virkilega góð eign á frábærum stað.

Skoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Grasarimi 20

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45