HÚSASJÁ

Berjarimi 4

02-0203 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

126 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1995

Byggingarár

4033 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



54 dagar á sölu

sell

69.900.000 kr

554.322 kr/m²

Fasteignamiðlun Grafarvogs kynnir þriggja herbergja íbúð á annari hæð að Berjarima 4, 112 Reykjavík, ásamt stæði í lokaðri bílageymslu, nánar tiltekið eign merkt 02-03, fastanúmer 204-0217 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi, birt stærð er 126.1 fm.

Íbúðin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, búr/þvottahús tvö svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign er sér geymsla og hjólageymsla og bílastæði í lokaðri bílageymslu.

Nánari lýsing

Forstofa er flísalögð og með góðum fataskáp.

Eldhús er með góðum innréttingum. Parket er á gólfi, inn af eldhúsi er þvottahús og búr.

Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð og gengt er út á vestursvalir úr stofu, parket á gólfi.

Herbergin eru á sér gangi og fyrir framan þau er ágætt vinnuhorn, parket á gólfi.

Hjónaherbergi er bjart og rúmgott með innbyggðum skápum, dúkur á gólfi.

Barnaherbergi er bjart og rúmgott með skáp, dúkur á gólfi.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með baðkari og góðri innréttingu.

Í sameign er sér geymsla og hjólageymsla og bílastæði í lokaðri bílageymslu.

Eignin er í grónu hverfi, stutt er í skóla og leikskóla og þjónustu í Spönginni svo sem verslanir og heilsugæslu.

Nánari upplýsingar veitir Árni Þorsteinsson Rekstrarhagfræðingur M.Sc. Löggiltur fasteigna- og skipasali Löggiltur leigumiðlari, í síma 8983459, tölvupóstur arni@fmg.is og Sigrún Stella Einarsdóttir löggiltur fasteigna-skipa og fyrirtækjasali í síma 824 0610 og í tölvupósti stella@fmg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp.

Kort af Berjarimi 4

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30