HÚSASJÁ

Gullengi 5

01-0102 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
35 myndir

106 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1997

Byggingarár

839 m²

Lóð

Sérinngangur

Geymsla

Þvottahús



113 dagar á sölu

sell

83.500.000 kr

788.480 kr/m²

Trausti fasteignasala og Mirabela Aurelia Blaga, löggiltur fasteignasali, kynnir í einkasölu falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og stórum palli, að Gullengi 5, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Laus strax við kaupsamning !

Sérlega björt og smekkleg 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í fjölskylduvænu og vinsælu hverfi í Grafarvogi.

Eignin Gullengi 5 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 203-9285, birt stærð 105.9 fm. og hefur verið endurnýjuð á síðustu misserum með vönduðum efnum og góðu handbragði.

Íbúðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, rúmgóða stofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús og geymslubúr

Stofan er björt og rúmgóð með útgengi á stóran suðurpall með skjólveggjum, sem nýtist einstaklega vel yfir sumartímann.

Svefnherbergin eru bæði björt og rúmgóð, með nýlega endurnýjuðum fataskápum.

Eldhúsið hefur verið nýlega endurnýjað með nútímalegri innréttingu og góðu vinnuplássi.

Úr eldhúsinu er aðgengi að búri, sem nýtist vel sem geymslu- eða matarforðageymsla.

Þvottahús er einnig innan íbúðar, sem gerir rýmið þægilegt og vel skipulagt.

Baðherbergið er flísalagt, með sturtu og hita í gólfi.

Endurbætur og viðhaldEldhús endurnýjaðNý gólfefni lögðFataskápar í svefnherbergjum endurnýjaðirBaðherbergi endurnýjað nýlegaHúsið málað að utan 2024

Nærumhverfi

Gullengi 5 er í fjölskylduvænu og rólegu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.

Í göngufæri eru leik- og grunnskólar (Engjaskóli og Rimaskóli), Borgarholtsskóli, verslanir og þjónusta í Spönginni, auk Grafarvogslaugar og íþróttasvæða.

Gróið og friðsælt hverfi með góðum göngu- og hjólaleiðum og stutt í náttúruna.

Nánari upplýsingar veitir Mirabela Aurelia Blaga, löggiltur fasteignasali, í síma 699-0911, tölvupóstur mirabela@trausti eða Kristján Baldursson, löggiltur fasteignasali, í síma  867-3040 eða tölvupóstur

kristjan@trausti.isForsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Gullengi 5

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35