HÚSASJÁ

Gerðhamrar 2

01-0101 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
39 myndir

199 m²

Stærð

6

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1990

Byggingarár

838 m²

Lóð

Garður

Geymsla

Þvottahús



59 dagar á sölu

sell

149.900.000 kr

749.500 kr/m²

Helgafell fasteignasala kynnir 199,9fm. fallegt einbýlishús á einni hæð með innbyggðum 29fm. bílskúr við Gerðhamra 2 í Grafarvogi.

Húsið samanstendur af fjórum svefnherbergjum, stofu, borðstofu, setustofu, eldhúsi, baðherbergi, þvottahúsi, anddyri og gestasalerni. Innangengt inn í bílskúrinn.

Nánari lýsing:

Anddyri er rúmgott, flísalagt með rúmgóðum skáp.

Inn af anddyri er svefnherbergi sem nýtt er í dag sem skrifstofa.  Korkur á gólfi og fataskápur.

Gestasalerni á hægri hönd þegar komið er inn í íbúðina úr anddyrinu.  Flísar á gólfi.

Stofa með góðri lofthæð, gegnheilt eikarparketi á gólfi, flísalagt í kringum fallegan arin sem er í góðu lagi.

Borðstofa er inn af stofu með gegnheilu eikarparket á gólfi. Fín lofthæð.  Útgengt út í garð til vesturs úr borðstofunni.

Eldhús er bjart með eldri snyrtilegri innréttingu, gegnheild eikarparket á gólfi.  Pláss fyrir tvöfaldan ísskáp og uppþvottavél.  Góður borðkrókur í eldhúsinu.

Sjónvarpshol með gegnheilu eikarparketi á gólfi.

Barnaherbergi með harðparketi á gólfi og góðri lofthæð.

Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með góðri innréttingu baðkari og sturtuklefa.

Barnaherbergi með harðparketi á gólfi og fataskáp og góðri lofthæð.

Hjónaherbergi með harðparketi á gólfi og stórum fataskáp og góðri lofthæð.

Þvottahús rúmgott með lökkuðu gólfi og vask.  Geymsla/búr inn af þvottahúsi. Hægt er að komast upp á milliloft úr þvottahúsi.

Innangengt er úr þvottahúsi inn í rúmgóðan bílskúr.

Bílskúr er með steyptu gólfi góðri lofthæð.  Bílskúrshurð er extra há (240cm) og möguleiki að koma inn jafnvel breyttum jeppa inn í bílskúrinn.

Innkeyrslan og tröppur er hellulögð og upphituð.

Fallegur garður sem var hannaður af Stanislas landslagsarkitekt.  Hellulögn í kringum allt húsið.  Lítill geymsluskúr í garðinum.

Fallegt fjölskylduhús með fjórum svefnherbergjum innbyggðum bílskúr og fallegum garði

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:

Helgafell fasteignasala - sími 566 0000

Rúnar Þór Árnason, lgf., runar@helgafellfasteignasala.is

----------------------------------------------------------

Heimasíða Helgafells fasteignasölu

Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.

4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Kort af Gerðhamrar 2

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu