Vegghamrar 14
01-0201 · 112 Reykjavík



252 dagar á sölu
74.900.000 kr
743.056 kr/m²
Pálsson Fasteignasala kynnir:
-Sérinngangur
-Suðursvalir og sólskáli
-Þvottahús innan íbúðar
-Sérmerkt einkabílastæði
Íbúðin er skráð 100,8 fm samkvæmt HMS.
Hún er á 2. hæð með sérinngangi á góðum stað í Hamrahverfinu í Grafarvogi.
Tvö stór svefnherbergi eru í íbúðinni með möguleika á þriðja.
Um 6 fm geymsla sem breytt hefur verið í fataherbergi er með glugga með opnanlegu fagi og gæti hæglega verið nýtt sem rúmgott barnaherbergi.
Alrými er bjart með sólskála og suðursvölum og útsýni.
Geymsluloft er fyrir ofan íbúðina.
Alrými er flísalagt en svefnherbergi eru parketlögð.
Gler hefur verið endurnýjað, bæði að sunnan og norðanverðu.
Snjóbræðslukerfi í tröppum og stétt við hús – mikil þægindi yfir vetrartímann.
Skjólsæl og barnvæn staðsetning þar sem stutt er í skóla, þjónustu og fallega náttúru.
Nánari upplýsingar veita:
Ævar Jóhanns Lgf s: 861-8827 / aj@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í síma 775-4000 / palli@palssonfasteignasala.is
Skipulag eignarinnar:
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Geymsla með dúk á gólfi – í dag nýtt sem fataherbergi.
Stofa/ borðstofa mynda opið og bjart alrými sem tengist fallegum sólskála með útgengi út á góðar suðursvalir. Parket á gólfum.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, góðu skápaplássi og flísum á gólfi – praktísk vinnuaðstaða með glugga sem gefur góða birtu.
Hjónaherbergi með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í gólf og veggi og búið innréttingu með handlaug, upphengdu klósetti, handklæðaofni og rúmgóðri sturtu.
Þvottahús með glugga og góðri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Háaloft með talsverðu geymslurými.
Tvö sameiginleg geymslurými. Annað er undir útitröppum og hitt að framanverðu.
Skipt um þakrennur og niðurfallsrör fyrir árið 2011.
Þakið var málað fyrir um 9 árum.
Eignin er staðsett á rólegum botnlanga í Grafarvogi, í grónu og fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Leik- og grunnskóli eru í göngufæri og næstu matvöruverslanir eru í Spönginni og við Húsgagnahöllina á Bíldshöfða.
Falleg útivistarsvæði og gönguleiðir eru í næsta nágrenni.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna
























