HÚSASJÁ

Vegghamrar 3

01-0102 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
39 myndir

92 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1988

Byggingarár

1948 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir



38 dagar á sölu

sell

72.900.000 kr

795.852 kr/m²

Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu bjarta og fallega þriggja herbergja íbúð með sérinngangi í Vegghömrum 3, Grafarvogi, á vinsælum stað þaðan sem stutt er í skola og leikskóla og alla þjónustu. Íbúðin er á jarðhæð og með skjólgóðum palli fyrir aftan. Íbúðin er skrá 91,6 fm hjá HMS. Allar nánari upplýsingar veita Hallgrimur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is eða Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali með tölvupósti á kristjan@trausti.is

Nánari lýsing eignar:

Gengið er inn í snyrtilega og bjarta forstofu með svörtum flísum á gólfi og fatahengi.

Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu og svörtum flísum á milli skápa, parket á gólfi

Stofa og borðstofa eru rúmgóðar og bjartar og útgengt er út á stóra og skjólgóða verönd frá stofunni.

Svefnherbergi hjóna er rúmgott með góðum skápum og parketi á gólfi

Barnaherbergi er rúmgott og með parketi á gólfi.

Baðherbergi er með baðkari með sturtuaðstöðu, hvítum flísum á gólfi og einum vegg og tengi fyrir þvottavél.

Möguleiki er að bæta við einu herbergi ef það þarf.

Fjölbýlið er vel staðsett í barnvænu og vinsælu hverfi í Grafarvogi. Stutt er í skólann og í lítinn verslunarkjarna í Foldahverfi.

Allar nánari upplýsingar veita Hallgrimur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is eða Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali með tölvupósti á kristjan@trausti.isForsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Vegghamrar 3

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu