HÚSASJÁ

Rauðhamrar 3

01-0001 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
32 myndir

124 m²

Stærð

3

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1990

Byggingarár

3160 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



23 dagar á sölu

sell

84.900.000 kr

686.338 kr/m²

LIND fasteignasala og Herdís Sölvína Jónsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu 4ra herbergja íbúð á jarðhæð í góðu fjölbýli með sérinngangi og stæði beint fyrir framan sérinngang. Góð staðsetning þar sem að það er örstutt í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, heilsurækt, heilsugæslu og skemmtilegar gönguleiðir.

Eignin skiptist í forstofu, hol og gang þar sem útgengt er inn í sameign og geymslu, góða stofu með útgengi út á verönd, eldhús, fjögur svefnherbergi, og baðherbergi.

Eigninni fylgir hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu ásamt sér geymslu á jarðhæð.

Stærð eignar er 123,7 fm. skv. FMR. en þar af er geymsla 3,3 fm.

Allar nánari upplýsingar veitir Herdís Sölvína Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 862 0880 eða herdis@fastlind.is

Smelltu hér og fáðu söluyfirlit strax.

Nánari lýsing:

Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur.

Eldhús: Hvít innrétting með beykiköntum í U með ljósri borðplötu og eldhúskrók.

Stofa: Parketlögð, rúmgóð  og björt með stórum glugga. Gengið er út á svalir út frá stofu sem snúa í suð-austur.

Svefnherbergi: Parket á gólfi og góðum fataskáp.

Svefnherbergi II: Parket á gólfi og fataskáp.

Svefnhverbergi III: Plastparket á gólfi. (Skv. upprunalegum teikningum var það teiknað sem baðherbergi)

Svefnherbergi IIII: Parket á gólfi með góðum fataskáp.

Baðherbergi: Flísar á gólfi, hvít innrétting með ljósri borðplötu, frístandandi sturtuklefi og aðstaða fyrir þvottavél. (Skv. upprunalegum teikningum var það teiknað sem þvottahús)

Geymsla: Er með máluðu gólfi, timburhillum og er 3,3 fm.

Íbúðin er hjólastólavæn og er með mynd-dyrasíma.

Sér bílastæði er beint fyrir utan sérinngang inn í íbúðina.

2 hleðslustöðvar eru á bílastæði þar sem hver og einn hleður á sinn kostnað.

Eignin hefur fengið gott viðhald á síðustu 5 árum:Skipt um glugga þar sem þörf hefur verið á.Múrviðgerðir á húsi.Hús málað að utan.Stigahús málað og skipt um teppi.Skipt verður um útidyrahurð á sérinngangi á kostnað seljanda.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,

Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.

** Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.

** Frítt söluverðmat á þinni eign hér eða hjá Herdís Sölvína Jónsdóttir, sími 862 0880 / herdis@fastlind.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

-----------------------------------------------------------------------

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila

Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Kort af Rauðhamrar 3

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32