Leiðhamrar 42
02-0101 · 112 Reykjavík



128 dagar á sölu
125.900.000 kr
759.349 kr/m²
Domusnova fasteignasala og Andri H. Agnarsson lgf. kynna til sölu mjög fallegt og vandað parhús með mikilli og veglegri lofthæð. Húsið er á tveimur hæðum með bílskúr innarlega í botnlanga. Húsið er skráð samkvæmt HMS 165,8m2. Íbúðarhlutinn er 142,3m2 og bílskúrinn 23,5m2. Hluti efri hæðar er undir súð og því heildarfermetrar eitthvað fleiri en uppgefnir.
*Bílskúr
*Pallur/verönd og garður
*Arinn í stofu
*Sér þvottahús
Lýsing eignar:
Aðkoma: Húsið er innarlega í rólegum botnlanga. Fyrir framan húsið má með góðu móti leggja þremur bílum. Einnig rúmgott svæði fyrir setuaðstöðu fyrir framan hús.
Forstofa: Flísalögð forstofa með fallegum dökkum náttúru steinflísum og góðu skápaplássi.
Þvottahús: Innaf forstofu er gengið inn í þvottahús. Þar er stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Fínt vinnupláss og góð innrétting. Opnanlegur gluggi. Flísar á gólfi.
Eldhús: Mjög vönduð innrétting. Mikið skápa og borðpláss. Granítplötur á borðum. Innfelld uppþottavél og ísskápur ásamt bakaraofni í vinnuhæð. Borðkrókur er í eldhúsinu. Háfur yfir eyju. Stórir gluggar og flísar á gólfi.
Baðherbergi: Innrétting með ágætis geymsluplássi. Granítplata á borði. Baðkar og sér sturtuklefi. Handklæðaofn og upphengt salerni. Flísar á gólfi og opnanlegur gluggi.
Stofa/borðstofa: Alrýmið er einstaklega fallegt með mjög mikilli lofthæð. Á gólfum er parket og náttúru steinflísar á gólfi. Arinn með íslensku grágrýti í eldhólfi og á syllu. Stórir gluggar á alrýminu gefa fallega sýn. Útgengt frá stofu út á verönd/garð.
Svefnherbergi I: Á neðri hæðinni er hjónaherbergið. Það er parketlagt með góðum fataskáp.
Svefnherbergi II: Búið er að breyta alrýminu og nýtist þetta svefnherbergi sem hluti af alrýminu í dag. Þessu rými væri hægt að breyta aftur í svefnherbergi.
Svefnherbergi III: Þetta herbergi er á efri hæðinni. Rúmgott herbergi. Parket á gólfi. Mikið útsýni til norðurs. Í herberginu er gott geymslurými undir súð sem er lokað af.
Efri hæð: Nýtist í dag sem sjónvarpsrými, vinnuaðstaða og svefnherbergi. Undir súð er gott geymslurými.
Bílskúr: Mjög snyrtilegur. Heitt og kalt vatn. Opnanlegur gluggi. Rafmagnsopnari á bílskúrshurð. Gott geymsluloft.
**Innréttingar voru hannaðar af Önnu Pálu Pálsdóttur arkitekt og smíðaðar af Brúnás. Gólfefni í húsinu eru gegnheilt parket og dökkar náttúru steinflísar. Allir sólbekkir eru úr fallegu blágrýti. Innfelld lýsing með ljósdeyfi (dimmer) í öllu húsinu. Mikil og vegleg lofthæð.
**Að sögn seljanda var húsið, þakkantur og gluggar allt málað fyrir um tveimur árum síðan.
Nánari upplýsingar veita:
Andri Hrafn Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.698-2127 / andri@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir















































