Kelduland 3
02-0202 · 108 Reykjavík



10 dagar á sölu
109.900.000 kr
904.527 kr/m²
Eignamiðlun kynnir:
Afar björt og rúmgóð 4-5 herbergja íbúð á 2. hæð við Kelduland 3 í Fossvogi. Stórar stofur og fjögur svefnherbergi skv. teikningu. Í dag eru þau þrjú en auðvelt er að breyta aftur til fyrra horfs. Stórar suðursvalir og fallegt útsýni. Húsið hefur fengið gott viðhald en nýlega voru allir gluggar hússins endurnýjaðir. Járn á þaki var endurnýjað fyrir um 12 árum. Næg bílastæði eru framan við hús. Frábært staðsetning í Fossvoginum þar sem stutt er í skóla og íþróttasvæði.
Nánari upplýsingar veitir: Lilja s. 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is
**Sækja söluyfirlit**
Eignin er skráð 121,5 fm og skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, búr/þvottahús, þrjú svefnherbergi (áður fjögur) og baðherbergi. Íbúðinni fylgir 2,3 fm geymsla í kjallara. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla.
**Sækja söluyfirlit**
Nánari lýsing:
Forstofa: Rúmgóð með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Eldhús: Snyrtileg hvít innrétting með góðu skápaplássi og ofni í vinnuhæð. Góður borðkrókur fyrir enda eldhús sem er opið við stofu.
Búr: Inn af eldhús er mjög gott búr/þvottahús með góðum glugga.
Stofa/borðstofa: Mjög rúmgóðar og bjartar stofur með útgengi á sólríkar suðursvalir sem liggja meðfram allir íbúðinni.
Svefnherbergisgangur: Gott skápapláss er á svefnherbergisgangi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með salerni, innréttingu og baðkari með sturtuaðstöðu. Góður gluggi.
Herbergi: Mjög rúmgott með parketi á gólfi. Þetta herbergi var áður tvö herbergi og væri mjög auðvelt að breyta því aftur til fyrra horfs.
Herbergi: Ágætt herbergi með parketi á gólfi.
Geymsla: 2,3 fm geymsla fylgir íbúðinni og er staðsett í kjallara.
Þvottahús: Aðstaða er fyrir þvottahús inn af eldhúsi en einnig er sameiginlegt þvottahús í kjallara.
Sameign og garður: Sameignin er mjög snyrtileg en til stendur að mála og skipta um teppi nú á vormánuðum.
Um er að ræða frábæra fjölskyldueign á þessum vinsæla stað í Fossvoginum. Skóli og íþróttamannvirki eru í göngufæri og stutt í stofnbrautir.
Nánari upplýsingar veitir: Lilja Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í s. 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna

























