Brúnaland 18
19-0101 · 108 Reykjavík



264 dagar á sölu
169.900.000 kr
677.162 kr/m²
Eignamiðlun kynnir:
Brúnaland 18, 250.9 fm Vel staðsett raðhús fyrir neðan götu ásamt bílskúr. Stórar stofur og fjögur svefnherbergi. Upprunalegt raðhús með suður garði og suður svölum.
Eignin skiptist í forstofu/hol, 4 svefnherbergi, stofu, sjónvarpshol, borðstofu, eldhús, þvottahús, geymslu og baðherbergi, snyrtingu, sánaklefa og rúmgóð rými á neðsta palli.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Nánar um eignina:
Komið er inn í rúmgott anddyri með snyrtingu, flísar á gólfi. Þaðan er komið inn í teppalagt hol, inn af því er eldhús með upprunalegri innréttingu, dúkur er á gólfi. Inn af eldhúsi er geymsla/búr. Stofan og borðstofan eru einstaklega bjartar og rúmgóðar með fallegu útsýni og útgengt er út á suður svalir. Teppi eru á gólfum. Búið er að stúka af sjónvarpshol í hluta af stofunni.
Neðri hæð: Hjónaherbergi með útgengt út í garð auk þriggja annara herbergja sem öll eru með parketi á gólfi, rúmgott flísalagt baðherbergi með baðkari.
Á neðsta palli eru mikil rými sem telja þvottahús, sánu með sturtu og geymslur. Auðvelt er að breyta þessu rými í svefnherbergi eða jafnvel sér útleiguíbúð. Rými sem býður upp á ýmsa möguleika.
Bílskúr skráður 22,4 fm. er í bílskúrslengju með rafmagni, heitu og köldu vatni.
Eignin er á grónum stað í Fossvoginum þar sem stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir og íþróttasvæði.
Fasteignamat 2026: 178.000.000 kr.
Nánari upplýsingar veita:
Kjartan Hallgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 824-9093 eða kjartan@eignamidlun.is
Lilja Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir





































