HÚSASJÁ

Sogavegur 210

01-0101 · 108 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
33 myndir

268 m²

Stærð

5

Herbergi

6

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

1955

Byggingarár

680 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Þvottahús

Heitur pottur

Auka íbúð



101 dagar á sölu

sell

149.500.000 kr

557.628 kr/m²

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu fallegt, vel staðsett og vel skipulagt 225,7 fermetra einbýlishús, kjallara, hæð og ris, auk 42,4 fermetra bílskúr á 680,0 fermetra gróinni lóð við Sogaveg í Reykjavík.  Auka íbúð er í kjallara hússins og stórar þaksvalir eru út af rishæð.

Eignin stendur á 680,0 fermetra fullfrágenginni lóð með skjólsælum veröndum til suðurs með heitum potti.

Lýsing eignar:

1. hæð hússins er 114,0 fermetrar að stærð og skiptist þannig:

Forstofa, flísalögð og með fatahengi. Úr forstofu er stigi upp á rishæð.

Hol, flísalagt og rúmgott.

Eldhús, flísalagt og bjart með miklum gluggum og fallegu útsýni að Esjunni og út á sjóinn. Ljós viðarinnrétting með mosaikflísum á milli skápa, tengi fyrir uppþvottavél, gashelluborð og góð borðaðstaða.

Borðstofa, inn af eldhúsi, er opin við sjónvarpsstofu og setustofu, parketlögð og rúmgóð.

Sjónvarpsstofa, parketlögð og rúmgóð.

Setustofa, sem gengið er í um eitt þrep úr borðstofu, er síðari tíma viðbygging. Stofan er mjög rúmgóð, parketlögð og björt með miklum gluggum inn að baklóð og útgengi á verandir til suðurs.

Hjónaherbergi, inn af holi, parketlagt og með fataskápum.

Gestasnyrting, með glugga, flísalagt gólf og vegghengt wc.

Þvottaherbergi, nýlega endurnýjað og með útgengi á baklóð. Flísalagt gólf, innrétting og flísalögð sturta með sturtugleri.

Gengið er upp á rishæð um steyptan flísalagðan stiga úr forstofu á 1. hæð.

Rishæð hússins er skráð 63,8 fermetrar að stærð, en er þó stærri að gólffleti, og skiptist þannig:

Gangur, parketlagður.

Lítið hol, parketlagt og með útgengi á svalir til suðurs og þaðan á stórar þaksvalir ofan á viðbyggingu sem eru með skjólveggjum.

Barnaherbergi I, parketlagt.

Barnaherbergi II, parketlagt.

Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf, innrétting og baðkar með sturtuaðstöðu.

Barnaherbergi III, parketlagt og rúmgott.

Barnaherbergi IV, parketlagt.

Kjallari er undir húsinu að hluta, skráður 47,9 fermetrar að stærð, og er með um 2,0 metra lofthæð.  Bæði er innangengt og sérinngangur af lóð í kjallara hússins, en þar hefur verið útbúin stúdíóíbúð.

Forstofa, rúmgóð með steingólfi og fatahengi.

Stofa, parketlögð.

Eldhús, parketlagt og með glugga. Ný hvít lítil innrétting með vaski en án tækja.

Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf, sturtuklefi og tengi fyrir þvottavél.

Svefnherbergi, stórt, parketlagt og með góðum glugga.

Bílskúr, sem er frístandandi á lóð, er 42,4 fermetrar að stærð. Rafmótor á bílskúrshurð, göngudyr, góðir gluggar til suðurs og rennandi heitt og kalt vatn. Bílskúr var múrviðgerður og málaður 2025.

Húsið að utan var múrviðgert og málað sumarið 2025 og lítur vel út. Gluggar í húsinu hafa verið endurnýjaðir að hluta.

Lóðin, sem er 680,0 fermetrar að stærð, er fullfrágengin. Á framlóð eru hellulagðar stéttar með hitalögnum undir að hluta, tyrfð flöt og steypt innkeyrsla fyrir framan bílskúr með stæðum fyrir 2 bíla.  Á baklóð hússins eru skjólsælar verandir. Hellulögð verönd til suðurs útaf stofum og önnur viðarverönd með skjólveggjum og heitum potti. Á baklóð er einnig geymsluskúr með torfþaki og rafmagni og vestan við húsið er tyrfð flöt.

Staðsetning eignarinnar er góð í grónu og skjólsælu hverfi þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, verslanir og þjónustu.

Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Kort af Sogavegur 210

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33