HÚSASJÁ

Byggðarendi 19

01-0101 · 108 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
31 myndir

132 m²

Stærð

3

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1972

Byggingarár

925 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



2 dagar á sölu

sell

109.900.000 kr

829.434 kr/m²

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Falleg og björt 5 herbergja neðri hæð í góðu tvíbýli með sérinngangi og stórum palli í vinsælu hverfi að Byggðarenda 19, 108 Reykjavík.

Húsið er hannað af Kjartani Sveinssyni.

* 4 rúmgóð svefnherbergi

* Stór lokaður suður pallur.

* Sérinngangur .

* Sér bílastæði sem er hellulagt og upphitað.

Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 132.5 fm allir fermetrar eru innan eignarinnar.

Fasteignamat 2026 er 100.850.000 mkr.

Nánari upplýsingar

Inga Reynis lgf í síma 8201-1903,  inga@palssonfasteignasala.is og

Páll Pálsson Lgf. í síma 775-4000, palli@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is

www.verdmat.is

Góð ráð fyrir kaupendur

Eignin skiptist í forstofu, sjónvarpshol, stofu, 4 svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, geymslu og þvottahús.

Nánari lýsing eignar:

Gengið er niður hellulagðar tröppur norðan megin við húsið, hiti í tröppum.

Forstofa er mjög rúmgóð með fataskáp,  fallegum flísum og hita í gólfi.

Stofa og borðstofa er í sameiginlegu rými sem er mjög bjart og parket á gólfi.

Hjónaherbergi rúmgott með góðum fataskáp, parket á gólfi.

Barnaherbergi mjög rúmgott með parket á gólfi.

Barnaherbergi rúmgott, með fataskáp, útgengt er út í garðinn og parket á gólfi.

Sjónvarpshol er í alrýminu með parket á gólfi.

Eldhús er með eldri innréttingu, borðkrók og dúk á gólfi.

Úr eldhúsinu er gengið inn í sameign með sér geymslu og sameiginlegu þvottahúsi.

Barnaherbergi stórt með fataskáp og parket á gólfi.

Baðherbergi er með góðri innréttingu, baðkari og sturtu. Flísar á gólfi.

Sérgeymsla er inn í íbúðinni.

Stór afgirtur garður með palli og hellulagðri verönd.

Sér bílastæði sem er hellulagt og upphitað.

Tvennir skúrar eru á lóðinni annar er 15 fm einangraður og upphitaður með rafmagnsofn.

Hinn er kaldur skúr sirka 8 fm.

Nýleg göngu/hjólreiðastígur fyrir neðan húsið sem liggur í báðar áttir.

Framkvæmir sem hafa verið gerðar á eigninni undanfarið að sögn seljenda.2024 Þak og  bárujárn á upphækkaða hluta þaksins yfirfarið og málað2024 Garður - Rafmagnstafla sett upp í garðskúr og ljósum bætt við skjólvegg og rafmagnstenglar settir upp í garðinum. Sorpskýli sett upp fyrir eignina við innkeyrsluna.2022  Framkvæmdir í garði var settur upp skjólveggur, pallur og garðhús (15 fm með tvöfaldri hurð). Tvær hurðir út úr garðinum - Önnur stærri til að koma vagni út um hliðið.. Ídráttarrör til staðar frá þvottahúsi  út í garð til að auðvelda uppsetningu á heitum potti.2020-2022 var skipt um blöndunartæki og skipt um innréttingu og vask einnig var málað.2019 var forstofan tekin í gegn  - Skipt um gólfefni, settur hiti í gólf (tengt ofni) ásamt nýjum skápum.Vel skipulögð eign miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og fallegar gönguleiðir í Elliðár- og Fossvogsdalnum.

Íþróttasvæði Víkings í göngufæri og góðar samgöngur bæði fyrir hjól og bíla.

Nánari upplýsingar

Inga Reynis lgf í síma 8201-1903,  inga@palssonfasteignasala.is og

Páll Pálsson Lgf. í síma 775-4000, palli@palssonfasteignasala.is

Kort af Byggðarendi 19

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð