HÚSASJÁ

Sogavegur 101

01-0301 · 108 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
43 myndir

179 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1966

Byggingarár

626 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



60 dagar á sölu

sell

104.900.000 kr

587.675 kr/m²

Jason Kristinn Ólafsson, sími 775-1515 - jason@betristofan.is og Betri Stofan fasteignasala kynna: Rúmgóða efri hæð með útsýni, alls 178,5 fermetra við Sogaveg 101 ásamt bílskúr. Eldhús hefur verið fært í stofu og í dag er svefnherbergi þar sem eldhúsið var. Inn á svefnherbergisgangi er búið að stækka baðherbergið. Eignin er laus við kaupsamning

Stutt er í alla þjónustu, skóla, samgöngur, verslun og íþróttir.

Nánari lýsing:

Neðri forstofa: Með flísum á gólfi. Þaðan er gengið upp bjartan og rúmgóðan stiga með parketi. Gengið er niður í sameign frá neðri forstofu.

Efri forstofa/hol: Með sprautulökkuðum klæðaskápum og gólfhita.

Gestasnyrting: Hefur verið endurnýjuð. Flísalagt í gólf og veggi, hvítur sprautulakkaður skápur við vask og upphengt salerni.

Svefnherbergu I Rúmgott, bjart með gólfhita. Gluggar til suðausturs.

Svefnherbergi II Er rúmgott og bjart. Gluggar til norðvesturs. Herbergið var áður tvö svefnherbergi, auðvelt að breyta því aftur.

Hjónaherbergi III er rúmgott með skápum og glæsilegu útsýni til norðurs að Esjunni, Úlfarsfelli og víðar.

Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, góð innrétting með skápum, vinnuborð með vask, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og gluggi til norðausturs.

Geymsla/búr: Er staðsett fyrir innan þvottahús. Flísar á gólfi, hillur og gluggi til norðausturs.

Stofa: Er rúmgóð og björt og stórum gluggum.

Borðstofa: Er rúmgóð og björt. Borðstofa er opin inní eldhús og stofu með stóra glugga til suðurs.

Eldhús: með sprautulakkaðri eldhúsinnréttingu. Vönduð eldhústæki eru í eldhúsi, s.s. Miele stál bakaraofn og DeDietrich spansuðu helluborð, gert er ráð fyrir innbyggðri uppþvottavél. Auk þess er stál háfur, fallegar flísar á vegg og stór gluggi til suðurs. Eldhús er opið við borðstofu og er með gólfhita.

Svalir: Eru rúmgóðar og snúa til suðvesturs.

Baðherbergi: Er flísalagt með tvöfaldri sturtu, gólfhita og glugga til norðausturs. Endurnýjað 2022-2023

Bílskúr: Er rúmgóður eða 28,8 fermetrar með steyptu gólfi. Heitt og kalt vatn, rafmagn og upphitaður. Hægt að leggja tveimur bílum fyrir framan skúr. Góð aðkoma að bílskúr frá Rauðagerði.

Um er að ræða fjölskylduvæna hæð á góðum stað í Reykjavík - Stutt í alla þjónustu

Allar nánari upplýsingar gefa: Jason Kristinn Ólafsson, jason@betristofan.is í síma 7751515 - löggiltur fasteignasali

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Sogavegur 101

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð