HÚSASJÁ

Hólmgarður 2

01-0101 · 108 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

81 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1951

Byggingarár

506 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla

Þvottahús



18 dagar á sölu

sell

79.900.000 kr

976.773 kr/m²

Fasteignasalan TORG kynnir: Falleg og björt íbúð á jarðhæð með sérinngangi miðsvæðis í Höfuðborginni. Um er að ræða eign í fjórbýlishúsi sem er skráð skv fmr 81,8fm og skiptist eftirfarandi: Forstofa, tvö svefnherbergi, stofa, eldhús, baðherbergi, geymsla og sameiginlegt þvottahús með einni íbúð. Árið 2015 var þakjárn endurnýjað, 2014 voru gluggar og gler endurnýjaðir og opnað fyrir svalahurð í stofu. Árið 2019 var húsið múrviðgert og málað að utan, 2020 var settur nýr þrýstijafnari á vatnskerfið, 2021 var drenað við íbúðina og 2022 voru herbergisgólf flotuð. Þetta er eftirsótt staðsetning þar sem örstutt er í alla þjónustu. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

Nánari lýsing: Forstofa: komið er inn um sérinngang inn í forstofu með flísum á gólfi og fatahengi.

Stofa: stofa eignarinnar er björt og rúmar einnig borðstofu. Flísar eru á gólfi og útgengt er út í garð frá stofu þar sem mögulegt er að setja verönd/sólpall.

Eldhús: Eldhús eignarinnar er fallegt með ljósri innréttingu. Tengi er fyrir litla uppþvottavél og háfur er yfir eldavél með keramikhelluborði. Rúmgóður borðkrókur og tveir gluggar eru á eldhúsinu.

Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með baðkari með sturtuaðstöðu. Salerni er upphengt, skápur er undir vaski,  handklæðaofn og opnanlegur gluggi.

Svefnherbergi: Herbergin eru tvö, bæði rúmgóð með harðparketi á gólfi, fatahengi er í öðru og laus skápur í hinu sem geta fylgt með.

Geymsla: innan íbúðar er geymsla með flísum á gólfi og opnanlegum glugga.

Þvottahús: innaf forstofu er gengið inní sameigninlegt þvottahús með einni íbúð. Pláss er fyrir þvottavél og þurrkara og smá geymslurými.

Niðurlag: Þetta er björt og falleg íbúð miðsvæðis í borginni þar sem stutt er í alla þjónustu. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

Kort af Hólmgarður 2

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26
Hólmgarður 2, 01-0101 | Húsasjá