HÚSASJÁ

Háagerði 67

01-0201 · 108 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
15 myndir

56 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1955

Byggingarár

320 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



461 dagar á sölu

sell

57.900.000 kr

1.035.778 kr/m²

Betri Stofan Fasteignasla og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna góða þriggja herbergja risíbúð með sérinngangi í Háagerði 67, 108 Reykjavík. Gólfflötur íbúðar er mun meiri en birtir fermetrar gefa til kynna eða rúmlega 17fm meiri en uppgefnir fermetrar gefa til kynna.  Eignin skiptist í anddyri, geymsla/þvottahús, stofu, eldhús, baðherbergi og 2 sverfnherbergi. Vinsæl staðsetning í smáíbúðarhverfinu miðsvæðis á Reykjavíkursvæðinu með fjölbreytta þjónustu og verslun í nágrenninu.

Fasteignamat eignar fyrir árið 2026 skv. HMS verður 52.850.000kr

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg. Fasteignasali í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is

Nánari lýsing

Forstofa: Flísalögð og gengið upp parketlagðan stiga upp í íbúðina.

Þvottahús: Innaf stigapalli. Rúmgott.

Stofa: Rúmgóð. Góð tenging við eldhús.

Eldhús: Innrétting með efri og neðri skápum ásamt borðkrók.

Herbergi I: Ágætlega rúmgott. Innbyggðir fataskápar.

Herbergi II: Mikið undir súð, gott gólfpláss. Skráð sem geymsla skv. teikningu.

Baðherbergi: Flísalagt með sturtuklefa, upphengdu salerni

Geymsla: Sérgeymsla á jarðhæð.

Vel skipulögð 3 herbergja rishæð með sérinngangi á þessum vinsæla stað miðsvæðis í Reykjavík. Fjölbreytt verslun og þjónusta allt í kring, skólar á öllum stigum ásamt íþróttasvæði Víkings í Víkinni.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý lögg. fasteignasali í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is

Kostnaður kaupanda:

Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga  er  0,8%  og lögaðila  1,6% af fasteignamati eignar.

Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum,  oftast 1%.

Þinglýsingargjald er 2.700kr fyrir hvert skjal.

Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald af fasteigninni þegar brunabótarmat liggur fyrir.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan Fasteignasla bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Háagerði 67

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð