HÚSASJÁ

Háagerði 67

01-0101 · 108 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
32 myndir

73 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1955

Byggingarár

320 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður



24 dagar á sölu

sell

69.900.000 kr

961.486 kr/m²

Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu HÁAGERÐI 67, 108 Reykjavík. Falleg 3-4 herberbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og stórum sérgarði.

Íbúðin er björt og hver fermetri nýtist vel. Eignin er í steinsteyptu raðhúsi, byggt árið 1955, og tilheyrir sérnotaflötur sem er öll lóðin sunnan við húsið.

Eignin er skráð alls 72,7 fm. skv. HMS. (Sérafnotagarðurinn er ekki inn í fermetratölu íbúðar)

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit

Allar nánari upplýsingar veita:

Auðun Ólafsson, löggiltur fasteignasali, s. 894-1976 / audun@trausti.is

Anton Y. Sakornram, aðstoðarmaður fasteignasala, s. 779-5463 / anton@trausti.is

Bóka verðmat

www.trausti.is

Trausti á Facebook

Nánari lýsing:

Forstofa: Harðparket á gólfi og fatahengi.

Stofa 1: Björt og rúmgóð með harðparket á gólfi. Útgengt í mjög stóran sérafnotagarð.

Stofa 2: Borðstofa, með skápum sem ná upp í loft, lítið geymslurými inn af vegg.

Eldhús: Nýlega endurnýtt þar sem settar voru nýjar innréttingar og gólfefni ásamt nýjum innbyggðum uppþvottavél og vaski. Einnig eru tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Svefnherbergi 1: Bjart og rúmgott með upprunalegum innbyggðum fataskáp sem ná upp í loft, harðparket á gólfi. Stærð 9,2 fm.

Svefnherbergi 2: Bjart og rúmgott, harðparket á gólfi. Stærð 7,0 fm.

Baðherbergi: Baðkar, sturta, klósett og vaskur, gólfið er flotað. Stærð 3,3 fm.

Sérafnotagarður: Stór og snyrtileg, með sólpalli og gras.

Íbúðin er mjög vel skipulögð og vel staðsett þar sem einfaldlega er stutt í allar áttir. Mjög miðsvæðis og stutt í Skeifuna, Kringluna, Borgarleikhúsið, Versló. Heilsugæslan er í Efstaleiti, ásamt þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis. Á Háaleitisbraut er verslunarkjarni með matvöruverslun, bakaríi, hárgreiðslustofu og apótek. Gunnskólar og leikskólar í næsta göngufæri. Mjög gott útivistarsvæði er í hverfinu sem og íþróttastarf í Fossvoginum og Elliðarárdalnum.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Háagerði 67

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu