HÚSASJÁ

Búðagerði 5

02-0203 · 108 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

164 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1966

Byggingarár

2447 m²

Lóð

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



578 dagar á sölu

sell

119.800.000 kr

730.933 kr/m²

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:

Stór íbúð á efstu hæð í litlu fjölbýli með tveimur auka útleigueiningum í 108 Reykjavík.

Sérlega falleg og björt eign, þ.e. 4-5 herbergja íbúð á 2. hæð, efstu hæð auk bílskúrs (nýlega breytt í studio íbúð) og auka herbergi (stúdíóherbergi) með aðgangi að baðherbergi í kjallara.

Stóra íbúðin er að losna úr leigu og getur verið afhent við kaupsamning ásamt yfirtöku kaupenda á leigusamningum í minni rýmum.

Íbúðin á hæðinni er 114,7 fm, íbúðarherbergi í kjallara 23,9 fm, geymsla í kjallara 6,4 fm og bílskúr (Stúdíóíbúð) sem er 24,6 fm.

Alls er því samtals birt stærð 163,9 fm.

Allar þrjár einingarnar hafa verið í útleigu og því mjög góðar leigutekjur.

Mjög góð staðsetning í vinsælu hverfi, er eignin í litlu fjölbýli, samtals 4 íbúðir í stigagangi.

Nánari lýsing:

Eignin skiptist í hol, fallegt eldhús með nýlegum innréttingum og tækjum, falleg borðstofa við eldhús með stórum glugga, tvær bjartar stofur þ.e. stofa og borðstofa, útgengt á v-svalir.

Svefngangur: rúmgott hjónaherbergi með skáp og stórt barnaherbergi (eru tvö herbergi á teikningu en hafa verið sameinuð í 1 stórt) - auðvelt að breyta aftur í 2 barnaherbergi.

Nýlegt baðherbergi, baðkar með sturtuaðstöðu, falleg innrétting, gluggi.

Rúmgóður skápur á gangi, einnig annar skápur þar sem þvottavél/þurrkari er í.

Í sameign er góð sérgeymsla, og rúmgott sameignlegt þvottaherbergi og baðherbergi með sturtuaðstöðu. Parket og flísar á gólfi.

Bílskúr/studio íbúð 24,6 fm: nýlega innréttuð með baðherbergi. Gönguhurð/sérinngangur. Íbúðin er í útleigu.

Kjallari: Rúmgott íbúðarherbergi 23,9 fm með eldhúskrók í opnu rými. Sameignlegt baðherbergi á gangi. Herbergið er í útleigu.

Bæði íbúð og sameign hafa verið mikið endurnýjuð á síðustu árum.

Pöntun á skoðun og nánari upplýsingar fást hjá:

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali

Sími: 899 0720

Netfang: hrannar@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Búðagerði 5

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26