Viðjugerði 12
01-0101 · 108 Reykjavík



26 dagar á sölu
285.000.000 kr
897.638 kr/m²
STÓRGLÆSILEGT OG MIKIÐ ENDURNÝJAÐ EINBÝLISHÚS MEÐ ÞRIGGJA HERBERGJA AUKAÍBÚÐ – VIÐJUGERÐI 12, 108 FOSSVOGI
Viðjugerði 12 er afar glæsilegt og vel skipulagt einbýlishús sem hefur verið endurnýjað með gæði, hönnun og vönduðu efnisvali að leiðarljósi. Húsið var tekið í gegn að innan sem utan á árunum 2012–2013, allt húsið pússað og málað árið 2018, baðherbergi á efri hæð endurnýjað árið 2021 og parket á efri hæð pússað og olíuborið árið 2024. Frá efri hæð er fallegt útsýni til suð-vesturs.
Efri hæð:
Á efri hæð mætir manni bjart og fallega hannað rými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda samfellda og opna heild. Arinn í stofu skapar hlýlega stemningu og útgengt er á rúmgóðar L-laga svalir sem snúa í suð-vestur.
Eldhús, borðstofa og lýsing voru hönnuð af Sæbjörgu Guðjónsdóttur, innanhússarkitekt. Við hönnunina var lögð áhersla á open plan living, þar sem rýmið nýtur sín í fullkomnu samspili við stofu og borðstofu. Notaðar eru svokallaðar pocket-hurðir sem loka af öll tæki og ísskáp, þannig að eikin og viðurinn fá að njóta sín í rýminu. Innréttingar eru sérsmíðaðar af RH Innréttingum, úr silkimattri hvítsprautulakkaðri og speglaðri skógareik. Borðplata er úr Rehau akrýlsteini frá Fantófelli. Lýsing er frá Rafkaup og í eldhúsi eru þrjú Megabulb ljós frá &Tradition sem undirstrika fágaða heild.
Á herbergisgangi eru tvö barnaherbergi og hjónaherbergi með rúmgóðu fataherbergi. Þar er einnig sólstofa, sem nýtt er í dag sem skrifstofa, með útgengi á svalir.
Baðherbergið er glæsilegt, með marmara, stórri sturtu og rúmgóðum innréttingum. Endurnýjað árið 2021, í samstarfi við Rut Káradóttur. Gólfhiti er á baðherberginu.
Á allri efri hæð, utan baðherbergis, er hvítskúraður askur.
Neðri hæð:
Fallegur hringstigi leiðir niður á neðri hæð. Þar er hol og mjög stórt þvottahús með infrarauðri gufu, góðri innréttingu og útgengi á sólpall og í garð. Frá þvottahúsi er innangengt í bílskúr, sem eykur þægindi í daglegu lífi.
Þriggja herbergja búð:
Á neðri hæð er þriggja herbergja íbúð með sérinngangi, auk innangengis frá holi. Íbúðin er björt og vel skipulögð, með eldhúsi, baðherbergi, rúmgóðri stofu með útgengi á stóran sólpall og í garð, rúmgóðu hjónaherbergi með góðu skápaplássi og barnaherbergi.
Íbúðin var endurnýjuð árið 2021 og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, hvort sem er fyrir fjölskyldu, gesti eða útleigu.
Garður og útisvæði:
Garðurinn er einstaklega fallegur og aflokaður, þar sem sólpallur er í aðalhlutverki. Í suð-vestur horni lóðar er eldstæði með setubekkjum og falleg næturlýsing í garði og á sólpalli, sem gerir rýmið notalegt allt árið. Á lóðinni er einnig stór geymsluskúr.
Fyrir framan húsið er glæsilegt bílaplan með mynstursteypu og hita, með plássi fyrir 4–5 bíla. LED-lýsing er í stigahandriði og ljósablómapottar á bílaplani.
Endurbætur:
Endurbætur á árunum 2012–2013 voru unnar af ÍAV þjónustu, sem sá um allar innanhússframkvæmdir.
Innanhúss:
– Dregið í nýtt rafmagn og töflur endurnýjaðar 2012
– Aðaltafla endurnýjuð 2024
– Nýjir ofnar á báðum hæðum
– Öll gólfefni og innréttingar endurnýjaðar
– Vatnslagnir og ofnar endurnýjuð
– Gólfhiti á baðherbergjum
– Varmaskiptar fyrir bæði neysluvatn og hita
Utanhúss:
– Skólp- og drenlagnir endurnýjaðar
– Lóð grafin upp og endurgerð
– Þakskegg og þakrennur endurnýjuð
– Þakjárn endurnýjað af fyrri eigendum
– Bílaplan stimpilsteypt og hiti í plani
– Laus múr fjarlægður og múrað upp á nýtt
– Nýtt handrið á tröppum
– Svalir brotnar upp og endursteyptar með mynstursteypu
– Nýtt glerhandrið á svölum
– LED-lýsing sett í garð og á sólpall
Þetta er eign þar sem vönduð hönnun, mikil endurnýjun og vel skipulögð rými mynda glæsilega og hlýlega heild.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR: Gunnar Valsson, löggiltur fasteignasali í síma 699-3702 / gunnar@fastlind.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna


















































