HÚSASJÁ

Sléttuvegur 17

01-0401 · 103 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
20 myndir

168 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1992

Byggingarár

9726 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



11 dagar á sölu

sell

169.000.000 kr

1.005.354 kr/m²

LIND fasteignasala og Rútur Örn lögm. og löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu einstaklega bjarta og rúmgóða 3 herbergja 137,6 fm. endaíbúð á 4. og efstu hæð í vönduðu fjölbýlishúsi við Sléttuveg 17 í Reykjavík ásamt 30,5 fm sérstæðum bílskúr. Eignin er ætluð íbúum 55 ára og eldri. Íbúðin er með stórum yfirbyggðum upphituðum sólskála sem byggður hefur verið yfir svalir til suðurs(ekki innan birtra fermetra) með fallegu útsýni yfir Fossvoginn og þaðan út á Reykjanesið. Svalir eru einnig út af hjónaherbergi og snúa í norðaustur með fallegu útsýni.

Einstök eign sem vert er að skoða.

Íbúðin samanstendur af einu svefnherbergi, bókaherbergi með sjónvarpshorni, rúmgóðri stofu/borðstofu, eldhúsi með vandaðri ALNO innréttingu og baðherbergi með góðu skápaplássi og sturtu sem gengið er beint inn í. Geymsla / þvottahús er innan íbúðar, en sömuleiðis er að finna sameiginlegt þvottahús á hæðinni.

Innra skipulag íbúðar var hannað af Glámu-Kím arkitektastofu. Engu var til sparað við hönnun og innréttingar en sérsmíðaðir forstofu- og svefnherbergisskápar hámarka nýtingu og geymslupláss. Innrétting í bókaherbergi er einnig sérsmíðuð og rúmar bækur, sjónvarp sem og lokaðar hirslur.  Ljósahönnun íbúðar var í höndum Reykjafells og fylgja öll ljós í lofti með eigninni. Gólfefni íbúðar er gegnheilt merbau parket fyrir utan forstofu, baðherbergi og sólskála sem lögð eru terrazzo flísum.

Nánari lýsing:

Forstofa: Gengið er inn í forstofu lögð terrazzo flísum með góðu skápaplássi.

Svefnherbergi: Stórt og rúmgott herbergi með fallegu gegnheilu merbau parketi á gólfum, góðu skápaplássi og útgengt út á svalir í norðaustur. Sömuleiðis er að finna glugga í herberginu sem vísa í norður, vestur og austur.

Bókaherbergi: Rúmgott herbergi með fallegu gegnheilu merbau parketi á gólfum og sérsmíðaðri innréttingu sem rúmar bækur, sjónvarp auk þess að vera með lokaðar hirslur. Gluggi í austur.

Stofa/Borðstofa: Opið og stórt bjart rými með fallegu gegnheilu merbau parketi á gólfum. Þaðan er gengið út í upphitaðan sólskála sem lagður er terrazzo flísum þar sem stórbrotið útsýni blasir við. Gluggar vísa í austur, suður og vestur.

Eldhús: Sérsmíðuð ALNO innrétting með bakaraofni í góðri vinnuhæð, keramik helluborði ásamt innbyggðum ísskáp og frysti. Uppþvottavél fylgir. Eldhúsið er lagt terrazzo flísum að hluta og gegnheilu merbau parketi að hluta. Hægt er að loka eldhúsi með innfelldri rennihurð. Gluggi í austur.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með smekklegri innréttingu og sturtu sem gengið er beint inn í. Stór speglaskápur með góðu skápaplássi. Gluggi í austur.

Geymsla/Þvottahús: Rúmgóð geymsla með skolvask og innréttingu ásamt góðu geymslu- og skápaplássi. Tengi fyrir þvottavél.

Breiður gangur tengir saman framangreind rými með fallegu gegnheilu merbau parketi á gólfum.

Bílskúr: Stór bílskúr sem stendur við enda bílskúrslengjunnar með rafknúnum hurðaopnara. Gott skápa- og hillupláss, heitt og kalt vatn ásamt vaski.

Myndavélasími og eldvarnarkerfi er í íbúðinni og tengjast þau miðlægum kerfum hússins.

Hleðslustöðvar fyrir rafbíla eru við húsið.

Fasteignin hefur fengið gott og reglulegt viðhald í gegnum árin, t.a.m. var eignin öll múrviðgerð og máluð að utan 2023 auk þess sem skipt var um glugga eftir þörfum og þak yfirfarið. Í þessari íbúð var skipt um suðurglugga í stofu og glugga í bókaherbergi. Skipt var um öll teppi á sameign haust 2025.

Sameign er öll til fyrirmyndar en á jarðhæð er m.a. setustofa, veislusalur, hárgreiðslu- og snyrtistofa, líkamsrækt með sturtuaðstöðu og gufubaði þaðan sem gengið er út á verönd sem snýr í suður með heitum potti.

Íbúðin er frábærlega staðsett þar sem stutt er í helstu þjónustu s.s. heilsugæslu, matvöruverslanir, Borgarleikhúsið og Kringluna ásamt því að stutt er að njóta allra þeirra lystisemda sem Fossvogurinn hefur að bjóða. Steinsnar er út á næstu strætisvagnastoppistöð.

Sléttan lífsgæðakjarni eldri borgara er í stuttu göngufæri, en hann er rekinn sameiginlega af Reykjavíkurborg og Hrafnistu þangað sem hægt að sækja ýmsa þjónustu og félagsstarf.

- Fyrir 55 ára og eldri.

- Lyftuhús.

- Eitt svefnherbergi.

- Bókaherbergi.

- Tvennar svalir - suðursvalir yfirbyggðar með sólskála.

- Bílskúr.

- Hárgreiðslu- og snyrtistofa í húsinu ásamt veislusal.

- Líkamsrækt og gufubað, heitur pottur í sameign.

- Húseigninni hefur verið vel við haldið.

- Húseigendatryggingatrygging er ekki innifalin í mánaðarlegum hússjóðsgjöldum, en er innheimt 2x á ári í gegnum húsfélagið. Heildargreiðsla trygginga fyrir þessa íbúð er kr 98.500 fyrir árið 2026.

Nánari upplýsingar veitir Rútur Örn Birgisson, lögmaður og löggiltur fasteignasali í s. 869-1031 eða í gegnum netfangið rutur@fastlind.is.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,

Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

-----------------------------------------------------------------------

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila

Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Kort af Sléttuvegur 17

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20