Lerkihlíð 5
01-0101 · 105 Reykjavík



343 dagar á sölu
82.900.000 kr
849.385 kr/m²
Prima fasteignasala og Oscar Clausen lgf. kynna Lerkihlíð 5, 105 Reykjavík. Góð 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á jarðhæð sem er skráð samkvæmt FMR 97,6 fm. möguleiki á að bæta við þriðja svefnherberginu.
Eignin er á mjög rólegum og vinsælum stað þar sem stutt er í alla þjónustu.
Komið inn í anddyri með flísum á gólfi og skáp. til hægri er svefnherbergi með dúk á gólfi. Rúmgott eldhús með nýjum tækjum (helluborð, ofn og ísskápur). Baðherbergi með glugga, flísalagt hólf í gólf. Svefnherbergi með parketi á gólfi og góðum skáp. Þvottahús/geymsla innaf íbúð. Stofa með parkefti á gólfi, hægt væri að taka hluta af stofu og útbúa þriðja svefnherbergið.
Eignin skiptist sem hér segir:
Forstofan er flísalögð með fataskáp.
Tvö svefnherbergi, annað með parketi og hitt með dúk og með skápum.
Eldhúsið er rúmgott með borðkrók, parketi á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt í hólf. Sturta og innrétting.
Stofan er parketlögð, þaðan er útgengt í garð með sérafnotafleti.
Þvottahús/geymsla þvottahús og geymsla eru innan íbúðar með góðri innréttingu, dúkur á gólfi.
Stutt í náttúruparadísina Öskjuhlíðina, ylströndina og fleira. Eins er sturr í skóla og þjónustu. Háskólar, framhaldsskólar og grunnskólar eru í næsta nágrenni sem og verslunarkjarna.
Nánari upplýsingar veita:
Oscar Clausen löggiltur fasteignasali / s.8618466 / oc@primafasteignir.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna

























