HÚSASJÁ

Efstaleiti 10

01-0303 · 103 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
55 myndir

154 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1985

Byggingarár

6876 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Heitur pottur



17 dagar á sölu

sell

129.900.000 kr

841.866 kr/m²

Valhöll kynnir rúmgóða þriggja til fjögurra herbergja íbúð á 3. hæð (engin íbúð fyrir ofan) í lyftuhúsi í Efstaleiti 10 í Reykjavík. Stæði í upphitaði bílageymslu fylgir með. Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni til austur, suður og vestur, til fjalla og sjávar. Sameignin er einstaklega vegleg og telur m.a. sundlaug, heitan pott, saunu, líkamsræktarsal, veislusal, setustofur, billiardaðstöðu og fleira. Húsvörður er búsettur í húsinu, í íbúð sem er í eigu húsfélagsins, og sér hann um daglegan rekstur hússins og viðhald.

Húsið, Efstaleiti 10-14, heitir Breiðablik og var það teiknað af arkitektunum Garðari Halldórssyni og Ingimuni Sveinssyni. Það var byggt árið 1985 og þótti lengi eitt glæsilegasta fjölbýlishús landsins og þykir jafnvel enn. Glæsilegt útsýni er frá húsinu og einstaklega vegleg sameign. Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík. Örstutt í verslanir og alla helstu þjónustu. Útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir eru í næsta nágrenni.

Íbúðin er skráð 154,3 fm að stærð og skiptist hún í 144,8 fm íbúð og 9,5 fm geymslu. Til viðbótar eru svo 8 fm svalir ásamt stæði í bílageymslu.

Íbúðin skiptist í anddyri, mjög stóra stofu / borðstofu, svefnherbergi, herbergi innaf stofu, skrifstofu / sjónvarpsrými, baðherbergi og eldhús. Geymslan er svo í kjallara.

Léttur veggur skilur að stofu og eldhús og væri hægt að opna þar á milli. Gegnheilt eikarparket með fiskibeinamunstri er á gólfum nema það eru flísar á baðherbergi.

Nánari lýsing:

Anddyri: með fataskáp og parketi á gólfi.

Stofa / borðastofa: mjög rúmgóð með björtum gluggum, glæsilegu útsýni, parketi á gólfi og útgengi á suður svalir.

Eldhús: með viðarinnréttingu, miklu skápaplássi, tveimum ofnum, uppþvottavél, borðplássi og parketi á gólfi.

Baðherbergi: með innréttingu, sturtuklefa, handklæðaofni, aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og flísum á gólfi.

Svefnherbergi: mjög rúmgott herbergi með mikilli lofthæð, góðu skápaplássi, parketi á gólfi og útgengi á svalir.

Herbergi: innaf stofu með rennihurð og parketi á gólfi.

Skrifstofa / sjónvarpsrými: með parketi á gólfi.

Geymsla: 9,5 fm sérgeymsla í kjallara.

Lóðin:

Lóðin er fullfrágengin með fjölda bílastæða á malbikuðu plani, hellulögðum stéttum og fallegum gróðri. Baklóðin er öll afgirt og þar er m.a. að finna upphitaða stóra sundlaug og heita potta.

Hússjóður:

Hússjóðsgjöldin eru 145.000 kr. á mánuði.

Nánari upplýsingar veitir:

Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða í tölvupósti á netfangið snorribs@valholl.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Efstaleiti 10

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45Mynd 46Mynd 47Mynd 48Mynd 49Mynd 50Mynd 51Mynd 52Mynd 53Mynd 54Mynd 55