Neðstaleiti 28
02-0101 · 103 Reykjavík



165 dagar á sölu
198.000.000 kr
828.105 kr/m²
Skeifan fasteignamiðlun s. 568-55-56 kynnir: Fallegt parhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr við Neðstaleiti 28, Reykjavík.
Skv. skráningu Þjóðskrár er neðri hæðin 105,6 fm, efri hæð er 109,5 og bílskúr er 24,0 fm., auk þess er óskráð rými í kjallara sem er ca. 60 fm. þannig að heildarstærð hússins er rúmlega 300 fm.
Neðri hæð: Komið inn í anddyri með granítflísum á gólfi og fataskáp, inn af anddyri er gesta w.c. með granít flísum, rúmgott hol, opið þaðan inn í rúmgóða stofu með massívu parketi á gólfi, borðstofu og arinstofu með flísum á gólfi. Úr arinstofu er gengið út á rúmgóða hellulagða verönd til suðurs, með heitum potti. Eldhús er með ágætum eldri innréttingum og góðum borðkrók, flísar á gólfi.
Úr holi er gengið upp steyptan parketlagðanstiga upp á efri hæðina.
Efri hæð er afar rúmgott sjónvarpshol/alrými með góðri lofthæð og massívu parketi á gólfi. 5 rúmgóð svefnherbergi, með dúk á gólfum . Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtuaðastöðu. Gengið úr holi er inn í þvottahús, sem er með flísum á gólfi og glugga.
Svalir úr hjónaherbergi til suðurs með miklu og góðu útsýni.
Hiti er í innkeyrslu.
Góð og vel staðsett eign, stutt í alla verslun og þjónustu.
Mjög gott fjölskylduhús á góðum stað miðsvæðis í borginni. Gott aðgengi er að húsinu og nóg af bílastæðum.
Eignin er í útleigu en getur losnað með skömmum fyrirvara.
SKEIFAN SKILAR ÁRANGRI - SÍÐAN 1985
Skeifan fasteignasala | Suðurlandsbraut 46 | 108 Reykjavík | Opið frá kl. 9-17 mánudaga til föstudaga | www.skeifan.is
Skeifan á Facebook

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir

























