HÚSASJÁ

Neðstaleiti 7

02-0102 · 103 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
27 myndir

75 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1983

Byggingarár

3646 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



68 dagar á sölu

sell

64.900.000 kr

858.466 kr/m²

Nýtt á skrá! Neðstaleiti 7 Reykjavík

LIND fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna bjarta og rúmgóða 2ja herbergja 75,6 fm íbúð á 1. hæð með góðum sérafnotreiti til suðurs og sérmerktu bílastæði í bílakjallara við Neðstaleiti 7 í Reykjavík. Rúmgóð stofa með stórum gluggum til suðurs, rúmgott svefnherbergi, eldhús sem er opið við stofu, baðherbergi (með baðkari og sturtu) ásamt sér þvottaherbergi.

Húsið lítur vel út að utan og ber þess merki að hafa fengið gott viðhald á undanförnum árum. Að sögn eiganda er nýlegt járn á þaki hússins og auk þess hafa gluggar sem voru komnir á tíma verið endurnýjaðir. Gangstétt fyrir framan hús hefur verið endurnýjuð og snjóbræðslukerfi lagað/yfirfarið. Þá er búið að mála bílakjallara og leggja hleðslustöðvar að stæðum í bílakjallara. Auk þess voru leiktæki í garði hússins endurnýjuð.

Stutt er í leikskóla (Austurborg), grunnskóla (Hvassaleitisskóla) og framhaldsskóla (Verzlunarskóla Íslands) ásamt því að verslun og margvísleg þjónusta er í næsta nágrenni (t.d. Kringlan og Austurver). Auk þess er stutt í Borgarleikhúsið, kvikmyndahús og fleiri afþreyingu innan hverfisins.

Nánari upplýsingar veitir:

Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 / heimir@fastlind.is

Nánari lýsing:

Forstofa: Með parketi á gólfi og skápum sem ná upp í loft.

Stofa og borðstofa: Með parketi á gólfi, góðum gluggum til suðurs ásamt útgengi á sérafnotaflöt til suðurs.

Eldhús: Með parketi á gólfi og hvítri/beyki eldhúsinnréttingu. Siemens bakaraofn og helluborð. Flísar á milli skápa.

Sérafnotaflötur: Er hellulagður og tyrfður. Afgirtur með gróðri á mörkum sérafnotaflatar og sameiginlegs garðar. Skjólgóður og snýr til suðurs.

Svefnherbergi: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til austurs.

Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Flísalögð sturta og baðkar með sturtutækjum. Vaskur, lítil innrétting fyrir ofan og salerni.

Þvottaherbergi: Með dúk á gólfi, tenglum fyrir þvottavél og þurrkara, hillum og vaski.

Bílastæði í bílakjallara: Sérmerkt stæði í bílakjallara. Nýlega uppsett hleðlustöð.

Geymsla: Er 7,6 fermetrar að stærð og staðsett nálægt íbúð.

Hjóla- og vagnageymsla: Er staðsett í bílakjallara.

Leiksvæði: Er á sameiginlegri lóð hússins. Nýleg leiktæki, m.a. rennibraut, sandkassi, rólur og bekkur.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,

Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.

Kort af Neðstaleiti 7

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð