Neðstaleiti 5
01-0302 · 103 Reykjavík



45 dagar á sölu
92.900.000 kr
866.604 kr/m²
NEÐSTALEITI 5 - GLÆSILEG MIKIÐ ENDURNÝJUÐ ÚTSÝNISÍBÚÐ MEÐ SUÐURSVÖLUM ÁSAMT BÍLASTÆÐI Í BÍLGEYMSLUHÚSI
Um er að ræða 100,3 fm íbúð á 3. hæð hússins merkt 0302 ásamt 6,9 fm sérgeymslu á 1. hæð. Eigninni tilheyra 10,4 fm svalir í suður, bílastæði í bílgeymsluhúsi ásamt hlutdeild í sameign allra. Frá íbúðinni og svölum í suður er glæsilegt útsýni til fjalla. Íbúðin er mikið endurnýjuð s.s. með nýju eldhúsi, baði, gólfefni og skápum.
Nánari lýsing eignar:
Eignin hefur mikið verið endurnýjuð undanfarin 3 ár. Nýtt gólfefni á allri íbúðinni og ný tæki í eldhúsi og á baði.
Stofa: Stofan er björt með gluggum í suður. Gengið er frá stofu út á mjög rúmgóðar suðursvalir. Skipt var um gler við svalir í des. 2025.
Sjónvarpshol: Sjónvarpshol er við stofu en auðvelt er að breyta því rými í herbergi.
Hjónaherbergi og barnaherbergi; Hjónaherbergið og barnaherbergi eru með nýju parketi og fataskápum.
Baðherbergi; Baðherbergið er allt endurnýjað með walk-in sturtu, upphengdu salerni og vaski með innréttingu.
Þvottaherbergi Þvottaherbergi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Geymsla fylgir íbúðinni á jarðhæð hússins.
Bílastæði í bílgeymsluhúsi.
Um er að ræða vel skipulagða og glæsilega eign á besta stað í Reykjavík þar sem stutt er í allar helstu stofnleiðir. Hvassaleitisskóli, Verzlunarskóli Íslands og Kringlan eru í næsta nágrenni. Fasteign með nýlegum innréttingum, tækjum og gólfefni. Húsið og sameignin hefur einnig fengið gott viðhald og margt verið endurnýjað s.s. þak o.fl.
Húsið hefur fengið gott viðhald og margt verið endurnýjað s.s.:
2019 húsið sprunguviðgert, málað og skipt um þak og var sú framkvæmd í umsjón VSB Verkfræðistofu.
2020 skipt um loftræstikerfi og túður í sameign.
2022 skipt um rofa í rafmagnstöflu.
2023 lagnaleiðum fyrir bílhleðslu komið fyrir í öll stæði í bílgeymslu (ON rafhleðslustöð - gera þarf samning við ON). Snjóbræðslukerfi var lagfært. Klárað að mála allt tréverk, þó aðallega glugga - sbr. fundargerð aðalfundar í apríl 2024.
2025 stigagangur málaður og lagt nýtt teppi á stigaganginn.
2025 nýjar hellur fyrir framan húsið.
Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Ólafs lögg. fasteignasali í síma 842-2212, to@remax.is.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Vinsamlega hafið samband við Þorstein Ólafs löggiltan fasteignasala í síma 842-2212 eða með pósti á to@remax.is.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna


















