HÚSASJÁ

Hvassaleiti 58

01-0403 · 103 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

78 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1985

Byggingarár

7528 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Hjólastólaaðgengi

Þjónustuíbúð

Geymsla

Þvottahús



44 dagar á sölu

sell

68.900.000 kr

885.604 kr/m²

RE/MAX & Bjarný Björg Arnórsdóttir Lgf kynnir í einkasölu Hvassaleiti 58 íbúð nr 403, bjarta og rúmgóða 2 herbergja íbúð á 4. Hæð með svölum í húsi fyrir eldri borgara ( VR blokkin fyrir 63 og eldri). Íbúðin er skráð 77,8 fm samkvæmt HMS.

Í húsinu er boðið er uppá ýmsa þjónustu og afþreyingu fyrir íbúa hússins, m.a. matsalur, hárgreiðslustofa, fótaaðgerðastofa, föndurstofa og leikfimisalur. Hægt er kaupa heitan mat í hádeginu. Vel staðsett íbúð í göngufæri við m.a. Kringluna og alla þjónustu.

Nánari upplýsingar gefur :

Bjarný Björg Arnórsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 694-2526 / bjarny@remax.is

Eignin skiptist í opna forstofu, baðherbergi, stofu og borðstofu, eldhús og gott svefnherbergi. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni með tækjum. Tvær góðar geymslur, ein á hæðinni og önnur stærri í kjallara.

Nánari lýsing:

Forstofa: Komið er inn í forstofu með parketi og fataskáp.

Stofa og borðstofa: bjart opið rými, parket á gólfi og útgengt á rúmgóðar svalir.

Eldhúsið: er með góðri hvítri innréttingu og parket á gólfi.

Baðherbergi:  flísalagt, innrétting og sturta sem gengið er inní.

Svefnherbergið: er með parket á gólfi og góðum fataskápum.

Þvottahús: er sameiginlegt á hæðinni með tækjum.

Geymslur: Tvær góðar geymslur, ein á hæðinni 4 fm, geymsla í kjallara 8,3 fm.

Íbúðin er sérlega björt og rúmgóð. Húsið hefur fengið jafnt og gott viðhald í gegnum árin og er nýlega búið að mála það að utan og skipta um teppi á stigagangi. Innifalið í húsfélagsgjaldi er þrif á sameign, umhirða á lóð, allt rafmagn í sameign, allur hitakostnaður, húseigendatrygging og framkvæmdasjóður. Íbúðin er laus til afhendingar.

Á jarðhæð hússins er félagsmiðstöð á vegum Reykjavíkurborgar og þar er boðið uppá ýmsa þjónustu t.d. heitan mat í hádeginu og miðdegiskaffi í stórum og björtum matsal.  Á hæðinni er vinnustofa, hárgreiðslu,- og fótaaðgerðarstofa. Í félagsmiðstöðinnu er boðið uppá fjölbreytt félags- og tómstundastarf auk fjölda námskeiða. Auk þess er æfingasalur, búningsklefar og sturtur á hæðinni.

** Félagsstarf Hvassaleiti 56-58 **

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.700 kr. af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Kort af Hvassaleiti 58

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu