HÚSASJÁ

Hörgshlíð 2

02-0202 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
34 myndir

186 m²

Stærð

3

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1988

Byggingarár

1733 m²

Lóð

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



239 dagar á sölu

sell

134.900.000 kr

725.269 kr/m²

Eignamiðlun kynnir:

Afar glæsileg 6 herbergja hæð á góðum og eftirsóttum stað í Hlíðunum.  Björt og vel skipulögð eign á 2. hæð. Aukin lofthæð, harðviður á gólfum, gólfsíðir gluggar, tvennar svalir með svalalokun. Loft tekin niður að hluta og dimmerar á flestum ljósum. Sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara. Eignin er skráð 186,0 fm þar af íbúð 162,7 fm, geymsla 7,3 fm og bílastæði 16,0 fm.

Íbúðin skiptist í 4 rúmgóð svefnherbergi, bjarta stofu með samliggjandi borðstofu, stórt eldhús, 2 baðherbergi, þvottahús innan íbúðar og sérgeymslu í sameign.

**Smelltu hér til að sækja söluyfirlit**

Nánari lýsing:

Anddyri: Komið er inn í stórt og rúmgott anddyri með miklu skápaplássi og parketi á gólfi.

Gestasalerni: Flísalagt í hólf og gólf, innrétting undir handlaug, granítborðplata, innfelld Vola blöndunartæki, sturta með hertu glerskilrúmi, upphengt salerni og handklæðaofn.

Stofa: Björt og rúmgóð með útgengi á stórar flísalagðar og yfirbyggðar suðursvalir. Fallegir gólfsíðir gluggar, parket á gólfi.

Borðstofa: Opin með stofu. Björt með fallegum gólfsíðum gluggum. Gert ráð fyrir arni. Parket á gólfi.

Eldhús: Mjög rúmgott. Falleg dökk innrétting með góðu skápa- og vinnuplássi og ofni í vinnuhæð. Stórt helluborð og vifta. Góður búrskápur. Mjúklokun á öllum skúffum. Gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp. Góður borðkrókur. Stórir gluggar og aukin lofthæð. Parket á gólfi.

Hjónaherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi. Útgengt á stórar og flísalagðar yfirbyggðar suðvestursvalir. Parket á gólfi.

Herbergi II: Rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.

Herbergi III: Rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.

Herbergi IIII: Rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.

Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Baðkar með sturtuaðstöðu, góð innrétting, speglar með lýsingu, upphengt salerni og handklæðaofn. Hannað af Rut Káradóttur.

Þvottahús:  Flísar á gólfi, stæði fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaskur, handklæðaofn og gott skápa- og vinnupláss.

Geymsla: Stór sérgeymsla í sameign (7,3 fm) með góðum hillum. Einnig sameiginlegt geymslurými innaf geymslugangi.

Bílastæði: Sérmerkt bílastæði í lokum bílakjallara. Stæði merkt 020005. Bílaþvottaaðstaða í bílageymslu. Fjarstýrð hurð, innangengt í sameign.

Hjóla- og vagnageymsla: Sameiginleg í sameign.

Búið er að leggja rafhleðsustöðvar við bílaplan. Hiti er í stétt framan við hús.

Einstaklega falleg og vel staðsett hæð í Hlíðunum með fjallasýn og skemmtilegu útsýni til Perlunnar og yfir hverfið. Stór garður og óbyggt grænt svæði til suðurs að Öskjuhlíð. Stutt í alla þjónustu og verslanir, íþróttastarf, hjóla- og útivistarsvæði. Leik-, grunn- og framhaldsskólar í göngufæri.

Nánari upplýsingar veita:

Oddný María Kristinsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 777-3711, tölvupóstur oddny@eignamidlun.is

Kjartan Hallgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 824-9093, tölvupóstur kjartan@eignamidlun.is og***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Kort af Hörgshlíð 2

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð
Hörgshlíð 2, 02-0202 | Húsasjá