HÚSASJÁ

Bogahlíð 14

02-0202 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
20 myndir

98 m²

Stærð

1

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1958

Byggingarár

3342 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



19 dagar á sölu

sell

79.900.000 kr

816.973 kr/m²

Eignamiðlun kynnir:

Frábær 4-5 herbergja íbúð með suðvestursvalir á góðum stað í Hlíðunum. Fjórða svefnherbergið í kjallaranum er heppilegt fyrir stálpaðan ungling eða sem útleigumöguleiki.

Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is

*** Sækja söluyfirlit ***

Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 202 við Bogahlíð 14 105 Reykjavík, F2031305. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 97,8 fm. Þar af er íbúðarrými skráð 82,4 fm. Sérgeymsla í kjallara er skráð 15,4 fm. Sameiginleg salernisaðstaða og sturta eru í kjallaranum. Íbúðin skiptist í anddyri / gang, eldhús og stofu sameiginlegu rými, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Sérgeymsla sem tilheyrir íbúðinni er í kjallara hússins geymslan er 15,4 fm, er með glugga og nýtist vel sem fjórða svefnherbergið eða útleiguherbergi.

Anddyri er með fataskáp. Harðparket á gólfi.

Eldhús er með snyrtilegri hvítri IKEA innréttingu. Harðparket á gólfi. Eldhús var endurnýjað árið 2022.

Stofa er í sameiginlegu rými með eldhúsi. Bjart og fallegt rými með útgengi á suðvestur svalir. Harðparket á gólfi.

Svefnherbergi 1 er rúmgott (12,7 fm) með góðu skápaplássi. Harðparket á gólfi.

Svefnherbergi 2 er rúmgott (10,4 fm) með opnum skápum. Harðparket á gólfi.

Svefnherbergi 3 er rúmgott (11,8 fm) með skápum. Harðparket á gólfi (annað parket en á öðrum rýmum).

Baðherbergi er með snyrtilegri grárri innréttingu og efri speglaskáp. Upphengt salerni. Walk-in sturta. Flísar á gólfi. Baðherbergi var endurnýjað af Baðlínunni árið 2022.

Sérgeymsla (15,4 fm) er í kjallara hússins. Stórt rými með glugga sem getur nýst sem fjórða svefnherbergi íbúðar eða útleiguherbergi.

Sameiginlegt þvottahús er í kjallara hússins.

Hjóla- og vagnageymsla í sameign er í kjallara hússins.

Garður, útgengt er í sameiginlegan garð úr kjallara hússins.

Bílastæði, sérmerkt bílastæði sem tilheyrir íbúðinni á plani, uppsett hleðslustöð. Að auki er lagt við götuna.

Íbúðin hefur verið endurnýjuð töluvert að innan á síðastliðnum árum. Eldhús var fært og er nú í sameiginlegu rými með stofu árið 2021, framkvæmt af Baðlínunni. Baðherbergi var algjörlega endurnýjað á sama tíma, einnig af Baðlínunni. Nýtt harðparket lagt á alla íbúðina nema eitt herbergi í desember 2024.

Húsið er byggt 1958.

Kostnaður kaupanda af kaupum:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.

2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.700 af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Kort af Bogahlíð 14

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð