HÚSASJÁ

Drápuhlíð 26

01-0101 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
35 myndir

120 m²

Stærð

3

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1947

Byggingarár

615 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla

Þvottahús



17 dagar á sölu

sell

114.500.000 kr

952.579 kr/m²

Borg fasteignasala kynnir í einkasölu:

Bjarta og afar vel skipulagða fjögurra svefnherbergja íbúð á 1. hæð (miðhæð), með sérinngangi, í fallegu og vel viðhöldnu steinhúsi við Drápuhlíð 26, 105 Reykjavík. Um er að ræða heila hæð í reisulegu húsi frá árinu 1947 á eftirsóttum stað í Hlíðunum. Íbúðin er rúmgóð, með góðri lofthæð og stórum gluggum sem hleypa mikilli birtu inn í rýmin. Skipulagið er fjölskylduvænt með fjórum svefnherbergjum og opnu alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús tengjast á þægilegan hátt. Útgengt er á svalir frá eldhúsi. Skv. Hms er eignin skráð alls 120,2 fm, þar af geymsla 4,8 fm.

Framkvæmdir og viðhald húss

Húsið hefur fengið umtalsvert viðhald á undanförnum árum:

Skipt um þakjárn og pappa árið 2026.

Endurnýjað rafmagn.

Árið 2018 var húsið múrviðgert og endursteinað.

Skólplagnir voru fóðraðar sama ár.

Ný rafmagnstafla var sett í sameign árið 2020.

Sameign (gangur og þvottahús) hefur nýlega verið máluð.

Nánari lýsing eignar

Inngangur/hol

Sérinngangur er í íbúðina. Komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu. Þaðan liggur leið inn í hol sem er parketlagt. Gengið er inn í allar vistarverur íbúðar frá holinu.

Stofa og borðstofa

Stofan er parketlögð, rúmgóð og björt með stórum gluggum sem hleypa mikilli dagsbirtu inn. Rýmið rúmar auðveldlega bæði setusvæði og borðstofu. Skipulagið er opið en þó skýrt afmarkað þannig að rýmin tengjast án þess að flæða of mikið saman. Gott pláss er fyrir stórt sófasett og borðstofuborð.

Eldhús

Eldhúsið er hluti af alrýminu og opnast beint úr stofu/borðstofu. Eldhúsið var endurnýjað í lok árs 2023, hvít og tímalaus innrétting frá HTH með efri og neðri skápum sem veita gott geymslupláss, marmari er á eldhúsbekkjum og á milli skápa. Vinnufletir eru rúmir og vinnuaðstaða góð.

Í eldhúsinu er helluborð, bakarofn, vönduð eldhúsvifta, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ískápur. Góður borðkrókur/borðstofa er við glugga sem nýtist vel til daglegra nota.

Útgengt er á svalir frá eldhúsi sem eykur notagildi rýmisins og gefur aukna birtu inn í eldhúsið.

Svefnherbergi

Hjónaherbergið er rúmgott með parketi á gólfi og fataslá. Gluggi gefur góða birtu.

Þrjú önnur herbergi eru í íbúðinni sem henta vel sem barnaherbergi, vinnuherbergi eða gestaherbergi. Fataskápar eru í öllum herbergjunum og þau parketlögð.

Baðherbergi

Baðherbergið með Flotuðu gólfi og máluðum flísum. Baðkar er með sturtuaðstöðu. Innrétting með góðu geymsluplássi. Frágangur er snyrtilegur og rýmið vel skipulagt.

Sameign og geymsla

Sameiginlegt þvottahús er í húsinu þar sem hver hefur sína vél. Sameign er björt og vel við haldið. Geymsla fylgir eigninni. Hjólageymsla er á lóð.

Gólfefni íbúðar

Gegnheilt parket, flísar og flotað gólf á baðherbergi.

Drápuhlíð er róleg og eftirsótt gata í Hlíðunum, þaðan er stutt í Kringluna, leik- og grunnskóla, háskólana, heilsugæslu og miðbæ Reykjavíkur. Einnig er stutt í falleg útivistarsvæði í Öskjuhlíð og á Klambratúni.

Nánari upplýsingar veita:

Úlfar Þór Davíðsson í síma 788-9030 og netfang ulfar@fastborg.is

Börkur Hrafnsson í síma 892-4944 og netfang borkur@fastborg.is

Kort af Drápuhlíð 26

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð