HÚSASJÁ

Stigahlíð 16

02-0202 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
18 myndir

84 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1959

Byggingarár

3718 m²

Lóð

Garður

Geymsla

Þvottahús



207 dagar á sölu

sell

69.900.000 kr

836.124 kr/m²

Eignamiðlun kynnir:

Mjög falleg og björt 3ja herb. 83,6 fm íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsið við Stigahlíð 16. Íbúðin skiptist m.a. í stofu / borðstofu, eldhús, tvö herbergi og baðherbergi. Sér geymsla er í kjallara. Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi í sameign. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Nánari uppl. veitir: Magnea S. Sverrisdóttir lg. fasteignasali s. 861 8511, magnea@eignamidlun.is

Nánari lýsing:

Forstofa: komið er inn í flísalagða forstofu með skápum.

Stofa / borðstofa: Samliggjandi stofa og borðstofa. Gólf er parketlagt. Svalir til suðurs.

Eldhús: Viðarinnrétting er í eldhúsi. Lögn fyrir uppþvottavél. Borðkrókur. Gólf er parketlagt.

Herbergi: Parketlagt herbergi er inn af stofum.

Hjónaherbergi: Dúklagt hjónaherbergi með skápum.

Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með sturtuklefa. Gluggi er á baðherbergi. Lögn fyrir þvottavél er á baðherbergi.

Geymsla: Sér geymsla er í kjallara.

Nýlegir gluggar (og gler) eru í eldhúsi, baðherbergi, hjónaherbergi og annarri stofunni.

Framkvæmdir utanhúss:

Framkvæmdum utanhúss er nýlokið (2025), m.a. var gert við svalir í húsinu og handrið hækkað, skipt var um glugga og gler í þeim íbúðum þar sem þörf var á, skipt var um niðurföll frá þakrennur og fl.  Járn á þaki hússins hafði áður verið endurnýjað. Árið 2016 voru frárennslislagnir frá húsi endurnýjaðar og sett var dren við húsið. Hiti er í gangstétt fyrir framan húsið. Rafmagnstafla í sameign hússins hefur verið endurnýjuð. Nýleg millihurð er í forstofu (í sameign hússins).

Húsið er staðsett miðsvæðis í Reykjavík. Stutt er í leikskóla, skóla og alla helstu þjónustu.

***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Kort af Stigahlíð 16

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð