HÚSASJÁ

Stigahlíð 10

03-0202 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

81 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1957

Byggingarár

3611 m²

Lóð

Svalir

Geymsla

Þvottahús



12 dagar á sölu

sell

71.900.000 kr

889.851 kr/m²

Viltu fasteignir kynna Stigahlíð 10 sem er mikið endurnýjuð íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýli

Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit, húsfélagsyfirlit og önnur sölugögn eignarinnar.

Stigahlíð 10 er falleg, björt og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð. Eignin skiptist í forstofu, samliggjandi stofu/borðstofu og eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymslu og svalir.

Eignin er skráð 80.8m2 og skiptist í 75,2m2 íbúð og 5,6m2 sér geymslu í sameign.

Íbúðin var mikið endurnýjuð á árnumum 2020-2021.

Fallegt planka harðparket á öllu nema baðherbergi. Baðherbergi algjörlega endurnýjað. Eldhúsinnrétting og tæki endurnýjuð. Innihurðir endurnýjað og skipt um ofna.

Nánari lýsing:

Forstofa: Frá sameign er gengið í forstofu og þaðan er gengið í önnur rými íbúðarinnar.

Stofa/borðstofa: Í rúmgóðu, opnu og björtu rými. Frá borðstofu er gengið út nettar svalir til vestur.

Svalir: Út frá stofu eru svalir til vestur. Snúa fullkomlega til að njóta sólar eftir vinnu og meðan grillað er.

Eldhús: Endurnýjuð svört innrétting í L. Ofn í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél. Góður gluggi þannig að eldhúsið er bjart og hálf opið inn í borðstofu.

Baðherbergi: Algjörlega endurnýjað. Flísalagt í hólf og gólf. Nett innrétting með plássi fyrri þvottavél. Gott sturtuhorn og handklæðaofn.

Hjónaherbergi : Rúmgott og bjart með tvöföldum fataskáp.

Svefnherbergi I: Bjart og gott herbergi með tvöföldum fataskáp.

Þvottahús: Á baðherbergi er gert ráð fyrir þvottavél. Í sameign er einnig sameiginleg þvottahús (hver með sína vél).

Geymsla: Í sameign í kjallara er 5,6m2 geymsla sem fylgir íbúðinni.

Húsið sjálft hefur fengið reglulegt viðhald gegnum tíðina:

2012- Gólfteppi á Stigagangi keypt og stigagangur málaður

2013- Rafmagnstafla endurnýjuð íbúð og sameign.

2018- Verksýn, Allir gluggar á húsinu, endurnýjaðir, þakjárn, þakrennur endurnýjað ásamt nýjum hurðum á svölum. í hjólageymslu og sorpgeymslu

2019- Nýtt dyrasímakerfi

2021- Eldvarnarhurðar settar á allar íbúðir

2022- Stigagangur málaður

2023- Verksýn; Múrviðgerðir á húsi, Drenað í kringum hús, nýjir brunnar og frárennsli endurnýjað, tröppur endursteyptar, fyrir framan og aftan hús.

Snjóbræðslukerf komið fyrir í tröppum og gangstétt við hús.

2024- Gangur, hjólageymsla, þvottahús og þurrkherbergi máluð veggir loft og gólf.

Eignin er á frábærum stað miðsvæðið í Reykjavík. Samgöngur eru góðar á svæðinu, stutt er í Kringluna, leik-, grunn- og menntaskóla, heilsugæslu, Klambratún, Öskjuhlíð o.fl.

Nánari upplýsingar veita Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 / heidrekur@viltu.is eða Viltu fasteignir í síma 583-5000 / hvad@viltu.is

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Kort af Stigahlíð 10

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu