HÚSASJÁ

Mávahlíð 39

01-0001 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
27 myndir

75 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1946

Byggingarár

488 m²

Lóð

Sérinngangur

Geymsla

Þvottahús



12 dagar á sölu

sell

69.900.000 kr

927.056 kr/m²

Viltu fasteignir kynna Mávahlíð 39 sem er mikið endurnýjuð íbúð í góðu fjölbýli í Hlíðunum

Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit, húsfélagsyfirlit og önnur sölugögn eignarinnar.

Mávahlíð 39 er falleg og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á neðstu hæð (lítið niðurgrafin). Eignin skiptist í forstofu, samliggjandi stofu/borðstofu og eldhús, tvö góð svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign er þvottahús og geymsla.

Eignin er skráð 75.4m2 og skiptist í 74,6m2 íbúð og 0,8m2 sérgeymslu undir stiga í sameign.

Íbúðin og húsið hafa fengið reglugegt viðhald gegnum tíðina.

Nýlegt, fallegt planka viðarparket er í allri íbúðinni nema baðherbergi og forstofu sem eru flísalögð.

Nánari lýsing:

Forstofa: Gengið er inn um sérinngang og komið í netta flísalagða forstofu.

Stofa/borðstofa: Bjartar og samliggjandi í góðu rými. Góður gluggi til suðurs út í garð.

Eldhús: Snyrtileg, ljós innrétting í U. Ofn og helluborð endurnýjuð og gert ráð fyrir uppþvottavél. Eldhúsið er hálf opið inn í borðstofu.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Nett innrétting og gott sturtuhorn. Tengi fyrir þvottavél en einnig er gott þvottahús í sameign.

Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með tvöföldum fataskáp.

Svefnherbergi I: Bjart og rúmgott herbergi með tvöföldum fataskáp.

Þvottahús: Á baðherbergi er gert ráð fyrir þvottavél. Í sameign á sömu hæð er einnig sameiginleg þvottahús (hver með sína vél)

Geymsla: Í sameign rétt fyrir utan íbúðina er 0,8m2 geymsla undir stiga.

Húsið sjálft hefur fengið reglulegt viðhald.

Í gegnum tíðina er búið er að endurnýja skólp, dren, þakjárn, glugga og gler.

Húsið var múrviðgert og steinað aftur 2020.

Nýbúið að skipta um allar útidyrahurðir.

Eignin er á frábærum stað miðsvæðið í Reykjavík. Fjölskylduvæn staðsetning þar sem stutt er í alla þjónustu og verslun. Kringlan, Suðurver, skólar, leikskólar, heilsugæsla, hársnyrting og Krambúðin allt í stuttu göngufæri.

Nánari upplýsingar veitir Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 / heidrekur@viltu.is eða Viltu fasteignir í 583-5000 / hvad@viltu.is

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Kort af Mávahlíð 39

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu