HÚSASJÁ

Eskihlíð 26

06-0301 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
17 myndir

79 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1977

Byggingarár

1891 m²

Lóð

Geymsla

Þvottahús



94 dagar á sölu

sell

74.900.000 kr

949.303 kr/m²

Fasteignasalan Garður

Baldur fasteignasali – Sími 450-0000 kynnir: bjarta og smekklega endurnýjaða þriggja herbergja íbúð á efstu hæð við Eskihlíð 26 í Reykjavík. Um er að ræða eign með miklu næði, einstaklega fallegu útsýni yfir Esjuna, út á sjó og Perluna. Íbúðin er með stórum suðursvölum hefur verið töluvert endurnýjuð á síðustu árum og er í vel viðhöldnu húsi með aðeins einni íbúð á hverri hæð og snyrtilegri sameign. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er íbúðin 78,90 fermetrar, þar af geymsla 4,80 fermetrar í kjallara.

-- Smelltu hér til að sækja kynningarbækling. --

Nánari lýsing:

Anddyri: Komið er inn í anddyri með fatahengi.

Eldhús: Snyrtileg hvít innrétting með góðu skápa- og vinnuplássi, ofn í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél og ísskápur. Stofa og eldhús mynda opið rými. Parket á gólfi.

Stofa/borðstofa: Bjart og rúmgott rými með parketi á gólfi. Útgengt er á stórar, sólríkar og skjólgóðar suðvestur svalir.

Hjónaherbergi: Parket á gólfi og góðir fataskápar.

Svefnherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.

Baðherbergi: Baðherbergið er nýlega endurnýjað. Flísalagt í hólf og gólf, walk-in sturta, vegghengt salerni og handklæðaofn. Falleg viðarinnrétting með vaski og spegill með lýsingu og móðuvörn. Valin voru vönduð efni og tæki, m.a. Grohe blöndunartæki, Vento handklæðaofn og gler frá Íspan.

Geymsla og sameign: Sérgeymsla 4,8 fermetrar í sameign ásamt sameiginlegu þvottahúsi og hjólageymslu í kjallara.

Annað:

Íbúðin er á efstu hæð með miklu næði og engar íbúðir eru beint á móti.

Skipt hefur verið um gler að hluta í íbúðinni og einnig í stigahúsi.

Húsið var nýlega málað að utan og þak endurnýjað.

Stigagangur var teppalagður og málaður.

Um er að ræða frábærlega staðsetta eign miðsvæðis í Reykjavík. Stutt í verslanir, þjónustu, leikskóla, grunnskóla, íþróttastarf, gönguleiðir, háskóla, menntaskóla, miðbæinn, stofnbrautir og samgönguleiðir.

Nánari upplýsingar veitir:

Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali

baldur@fastgardur.is / Beinn sími: 450-0000

Verðmat fasteigna

Baldur - Meðmæli

Lúxus fasteignir á Íslandi

Greidslumat.is - Getur þú keypt eignina?

Lóðarmat: 8.420.000

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður

Kort af Eskihlíð 26

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð