HÚSASJÁ

Eskihlíð 20A

02-0202 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

124 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1957

Byggingarár

2469 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



192 dagar á sölu

sell

84.900.000 kr

685.230 kr/m²

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Bjarta, hlýlega og vel skipulagða 123,9 fm 4ra herbergja íbúð á annarri hæð í Eskihlíð 20a, 105 Reykjavík. Íbúðin er rúmgóð og skemmtilega uppsett með tveimur stofum, tveimur svefnherbergjum og auk þess herbergi í kjallara sem býður upp á frábært tækifæri til útleigu eða sem gestaherbergi/skrifstofa. Í kjallara er einnig sameiginlegt baðherbergi með salerni og vask. Góð staðsetning, örstutt er í leik-, grunn- og framhaldsskóla. Einnig verslanir, veitingastaði og ýmsa þjónustu. Stutt er í náttúruperluna í Öskjuhlíð og útivistarsvæði við Klambratún.

Eignin Eskihlíð 20a er skráð sem hér segir hjá FMR: eign merkt 020202, fastanúmer 203-0455. Birt stærð 123,9 fm. ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Fasteignamat fyrir 2026 er 88.250.000m.

*Smelltu hér til að skoða myndband um eignina*

Björt og falleg 4ra herbergja íbúð á annarri hæð

Herbergi í kjallara með möguleika á útleigu

Frábær staðsetning - stutt í alla þjónustu

Möguleiki að breyta annarri stofunni í auka svefnherbergi.

Eign sem vert er að skoða!

​​​​​​

*Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*

Eignin skiptist í: Andyri, gang, tvö svefnherbergi,  tvær stofur/borðstofur, baðherbergi, svalir, herbergi í sameign og geymslu.

Nánari lýsing:

Andyri: Með parketi á gólfi, upphengi og skóskápum.

Eldhús: Er með parketi á gólfi og hvítri fallegri innréttingu og ljósgrárri borðplötu, Tvöfaldur Samsung ísskápur og AEG uppþvottavél sem getur fylgt með.

Hol/gangur: Er með rúmgóðum skápum og parketi á gólfi.

Stofa/borðstofa:Tvær rúmgóðar stofur og er þeim skipt upp með fallegri rennihurð, báðar með stóra og bjarta glugga, parket er á gólfum og útgengt er á suðvestursvalir úr annarri stofunni.

Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með góðum skápum, parket á gólfi.

Svefnherbergi: Rúmgott, með parketi á gólfi.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, upphengt wc, opin sturta og falleg baðinnrétting. (endurnýjað).

Herbergi er í kjallara með plastparketi á gólfi. Í sameign er svo salerni með wc og vask.

Geymsla í kjallara.

Þvottahús í kjallara þar sem íbúar eru hver með sína vél, þvottavél og þurrkara.

Hjóla- og vagnageymsla í kjallara.

Árið 2015 var sett nýtt þakjárn.

Árið 2015 var skipt um glugga í allri eigninni og nýjar svalahurðir.

Ný rafmagnstafla er í sameign.

Á bílastæði eru 4 bílhleðslustöðvar.

​​​​​​Nánari upplýsingar veita:

Hallveig Jónsdóttir, Nemi í löggildingu, í síma 699-0496, netfang hallveig@stofnfasteignasala.is

Benedikt Ólafsson, Löggiltur fasteignasali, í síma 661-7788, netfang bo@stofnfasteignasala.is

Ert þú að fara selja og vantar þig traustann, metnaðarfullann fasteignasala með reynslu og þinn hag í fyrirrúmi?  Ef svo er þá er okkar heiðurinn að vera fasteignasalinn þinn eða þinna! Okkur vantar allar tegundir fasteigna á skrá vegna aukinnar sölu!

"Við höfum Heilindi - Dugnaður - Árangur að leiðarljósi".

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:

Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:

Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

Nýtt - Eignin er nýbygging.

Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.

Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.

Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.

Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Eskihlíð 20A

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð