HÚSASJÁ

Eskihlíð 18A

01-0202 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
45 myndir

119 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1955

Byggingarár

2670 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



1 dagar á sölu

sell

87.900.000 kr

737.416 kr/m²

Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Rúmgóð og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð í fjölbýlishúsi að Eskihlíð 18a í Reykjavík. Eignin er skráð 119,2 fm. og skiptist í anddyri/hol, 2-3 rúmgóð svefnherbergi þar af er eitt með innangengt fataherbergi, endurnýjað baðherbergi, rúmgott eldhús, borðstofu og stofu. Frá stofu er útgengt á svalir með útsýni í sameiginlegan garð. Sérgeymsla innan íbúðar og önnur í kjallara ásamt sameiginlegu þvotta- og þurrkherbergi og hjóla- og vagnageymslu. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Nánari lýsing:

Forstofa/hol: Komið er inn í parketlagða forstofu/hol með innbyggðum fataskápum.

Eldhús: Rúmgott eldhús búið eldri innréttingu með góðu skápa- og vinnuplássi, helluborði, ofn, gufugleypi, stæði fyrir uppþvottavél og kæliskáp. Góður borðkrókur og gluggi með opnanlegu fagi. Dúkur á gólfi.

Stofa/borðstofa: Rúmgóðar stofur með parketi á gólfi. Frá stofu er útgengt á svalir sem snúa út í sameiginlegan garð.

Svefnherbergisgangur: Innan af forstofu er svefnherbergisgangur með góðu innbyggðu skápaplássi og parketi á gólfi.

Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með parketi á gólfi. Á eldri teikningum er hjónaherbergið skráð sem borðstofa. Búrskápur/geymsla er innangeng af rýminu.

Svefnherbergi: Að undanskildu hjónaherbergi eru tvö svefnherbergi með parketi á gólfi. Eitt þeirra er búið fataherbergi.

Baðherbergi: Uppgert baðherbergi búið hvítri innréttingu með stein á borði, handlaug, neðri skúffum og skáp. Salerni og flísalögð sturta með hertu gleri. Flísalagt gólf og gluggi með opnanlegu fagi.

Garður: Stór og snyrtilegur sameiginlegur garður.

Sérgeymsla/þvottaherbergi: Sérgeymsla innan íbúðar ásamt því að sérgeymsla er á jarðhæð sameignar. Sameiginlegt þvottaherbergi og hjóla- og vagnageymsla.

Bílastæði: Sameiginlegt bílastæði fyrir framan húsið.

Um er að ræða fallega og vel skipulagða íbúð á mjög vinsælum stað í Reykjavík. Betri staðsetning á höfuðborgarsvæðinu er vandfundin. Góðar samgönguæðar tengja hverfið við alla staði borgarinnar og stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir. Einnig er göngufæri í leik- og grunnskóla og útivistarsvæðin Klambratún og Öskjuhlíð. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma

í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.

Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir

og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Eskihlíð 18A

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð