HÚSASJÁ

Miklabraut 62

01-0101 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

116 m²

Stærð

2

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1946

Byggingarár

732 m²

Lóð

Garður

Geymsla

Þvottahús



4 dagar á sölu

sell

79.900.000 kr

685.837 kr/m²

RE/MAX kynna rúmgóða og bjarta 3-4. herbergja íbúð á fyrstu hæð með aukaherbergi í kjallara þar sem einnig er sameiginlegt eldhús og baðherbergi. Íbúðin skiptist í rúmgóða forstofu en þaðan er gengið inn í eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi ásamt stórri stofu og borðstofu með rennihurð (sem í dag er nýtt sem auka svefnherbergi). Eignin er skráð samkvæmt FMR. 96.7 m2 íbúð á 1.hæð ásamt 13.1 m2 herbergis í kjallara (sem hefur verið nýtt til útleigu) og 6.7 m2 sérgeymslu. Eigninni fylgir bílskúrsréttur baka til á lóðinni skv. eignaskiptalýsingu.

Eignin er einstaklega vel staðsett, miðsvæðis í Reykjavík, í grónu hverfi, þar sem stutt er í skóla, íþróttastarfsemi og alla helstu þjónustu.

Allar upplýsingar veitir Hilmar Arnarson, Hilmar@remax.is, 823-3673, aðstoðamaður fasteignasala.

- 3 svefnherbergi innan íbúðar, eins og hún er nýtt í dag.

-  Auka herbergi í kjallara sem hægt er að leigja út. Möguleiki á fínum leigutekjum.

- Svalir og sameiginlegur sólpallur

- Endurnýjuð rafmagnstafla í sameign

- Bílskúrsréttur

Skoðaðu eignina í 3D hér.

Nánari lýsing eignar:

Forstofuhol: rúmgott rými, er með flísum á gólfi og tveimur fataskápum.

Eldhús: er með ljósri innréttingu, AEG heimilistækjum og keramik helluborði ásamt uppþvottavél. Flísar eru á gólfi.

Baðherbergi: er flísað í hólf og gólf, með sturtu baðkari. Ljós innrétting, upphengt klósett, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.

Svefnherbergi I: rúmgott og bjart herbergi með stórum glugga til austur. Parket á gólfi.

Svefnherbergi II: bjart herbergi með stórum glugga til austur. Parket á gólfi.

Stofa og borðstofa: eru björt rými með gluggum í suður. Úr stofu er gengið inn í borðstofu um rennihurð sem í dag er nýtt sem herbergi en þar er stór og góður fataskápur. Útgengt er úr borðstofu út á svalir sem snúa út í gróinn garð, þar sem er einnig góður sameiginlegur sólpallur.

Geymsla og þvottahús: 6.7m2 geymsla í kjallara fylgir íbúðinni, en þar er einnig sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi.

Garður og lóð: er sameiginlegur en þar er búið að smíða góðan sólpall ásamt skjólvegg. Fjöldi bílastæða eru staðsett að framanverðu við húsið.

Aukaherbergi í kjallara: Rúmgott 13 m2, parketlagt herbergi í kjallara fylgir eigninni sem nýtist vel í útleigu eða fyrir unglinginn. Herbergið hefur aðgang að sameiginlegu eldhúsi og baðherbergi í sameign.

Allar upplýsingar veitir Hilmar Arnarson, aðstoðamaður fasteignasala, hilmar@remax.is 823-3673 og Sveinn Gíslason, löggiltur fasteignasali, sveinn@remax.is.

Remax fasteignasala sími 477-7777. www.remax.is

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Kort af Miklabraut 62

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð