HÚSASJÁ

Reykjahlíð 10

01-0101 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
15 myndir

65 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1946

Byggingarár

722 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla

Þvottahús



22 dagar á sölu

sell

59.900.000 kr

928.682 kr/m²

Fasteignasalan Garður

Baldur fasteignasali – Sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu snyrtilega og vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á jarðhæð í litlu og vel viðhöldu fjölbýli á eftirsóttum stað í Hlíðunum, Reykjavík, með skjólgóðum og hellulögðum sérafnotareit. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 64,50 fermetrar.

Smelltu hér til að sækja kynningarbækling með teikningu, söluyfirliti, yfirlýsingu húsfélags ofl.

Annar inngangur er fyrir efri hæð svo inngangur á jarðhæð (sjá mynd) nýtist sem sérinngangur fyrir þessar íbúð og forstofa nýtist íbúðinni sem sér forstofa með sérinngang en þessir auka fermetrar eru ekki inni á skráðum fermetrafjölda.

Endurbætur og viðhald:

- Eldhús og baðherbergi gert upp ca. 2018.

- Ofnalagnir endurnýjaðar 2016.

- Skipt um alla glugga á austur hlið (götu megin) árið 2015 og glugga að hluta á suður hlið hússins 2016.

- Sameign og þvottahús málað 2018

- Lagnir voru myndaðar síðasta sumar og allt leit vel út.

- Þak hefur verið skoðað reglulega og er það talið í góðu ástandi.

Skv. sölulýsingum annarra eigna sem hafa verið á sölu í húsinu undanfarin ár:

- Skólp endurnýjað fyrir nokkrum árum.

- Húsið steinað ca. 2007.

- Skipt um aðra glugga 2004.

- Dren og skólplagnir myndaðar fyrir nokkrum árum og drenlögn viðgerð (austurhlið) í framhaldi.

Íbúðin skiptist í forstofu/hol, eldhús, stofu, mjög rúmgott svefnherbergi, baðherbergi og búr/geymslu. Útgengi er frá eldhúsi út á sér afnotareit (sjá myndir).

Nánari lýsing:

Forstofa / hol: Rúmgott rými í sameign sem nýtist sem forstofa fyrir þessa íbúð.

Eldhús: Eldhús hefur verið nýlega endurnýjað með snyrtilegri hvítri eldhúsinnréttingu og góðu skápaplássi. Frá eldhúsi er útgengi út á skjólgóðan, hellulagðan sérafnotareit. Innaf eldhúsi er búr/geymsla, sem nýtist einstaklega vel sem hluti af eldhúsinu.

Stofa: Björt og notaleg stofa með parketi á gólfi.

Svefnherbergi: Mjög stórt og rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi og góðu plássi fyrir fataskáp.

Baðherbergi: Flísalagt gólf, walk-in sturta og nett innrétting við vask með efri skáp.

Annað: Sérafnotareitur við íbúð, hellulagður og skjólgóður.

Sameiginlegt þvottahús þar sem hver er með sína vél.

Húsið hefur verið viðhaldið í gegnum árin. Frábær staðsetning í Hlíðunum, stutt í skóla, leikskóla, þjónustu og útivist í Öskjuhlíð. Einstaklega rólegt og fjölskylduvænt hverfi.

Um er að ræða vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á einum vinsælasta stað borgarinnar, sem hentar sérstaklega vel fyrir fyrstu kaupendur, einstaklinga eða par sem vilja útirými og rólegt umhverfi. Ekki missa af þessari.

Nánari upplýsingar veitir:

Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali

baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000

Skoða meðmæli  -  Verðmat fasteigna  -  Lúxus fasteignir  -  Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt

Lóðarmat fyrir lánaútreikninga: 7.870.000

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður

Kort af Reykjahlíð 10

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð