HÚSASJÁ

Eskihlíð 6B

03-0201 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
18 myndir

89 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1956

Byggingarár

3277 m²

Lóð

Garður

Geymsla

Þvottahús



28 dagar á sölu

sell

81.900.000 kr

920.225 kr/m²

LIND Fasteignasala og Guðmundur Hallgrímsson Löggiltur fasteignasali kynna Eskihlíð 6b - íbúð 201

Fallega og mikið endurnýjaðjuð eign sem er vel staðsett í rólegri botnlangagötu í Hlíðunum. Suður-vestursvalir

Stutt í Miðbæinn.  Klambratún og Öskjuhlíð í göngufæri.

Lýsing eignar:

Anddyri/hol eignarinnar er parketlagt og tengir saman öll rými. Þar er innbyggt fatahengi/fataskápur.

Eldhús er með glugga til austurs og glæsilegri hvítri, lakk­aðri innréttingu frá danska framleiðandanum HTH, með efri og neðri skápum og skúffum. Í borðplötu er Core Stone akrýlsteinn. Eldhúsið er útbúið spanhelluborði og háfi, innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél og tveimur ofnum í vinnuhæð, annar þeirra er örbylgjuofn/ofn. Borðpláss er mjög gott og miðeyja með skápum öðrum megin og plássi fyrir háa stóla hinum megin, auk aðgengis að skápum. Stór og veglegur búrskápur er hluti af innréttingunni. Öll raftæki í eldhúsi eru frá AEG.

Stofa / borðstofa eru bjart og rúmgott parketlagt rými með útgengi út á suðvestursvalir þar sem notið er kvöldsólar og fallegs útsýnis í átt að Hallgrímskirkju.

Baðherbergi var endurnýjað árið 2018. Það er flísalagt á gólfi og að hluta á veggjum og baðkari með sturtuaðstöðu og sérsmíðuðu sturtuhengi. Þar er upphengt salerni, handlaug og spegill með innbyggðri lýsingu. Innbyggður og rúmgóður skápur er á móti handlaug og ofn við vegg.

Hjónaherbergi er rúmgott, parketlagt og bjart, með innbyggðum skáp, glugga til suðurs og m.a. útsýni í átt að Perlunni.

Svefnherbergi I er við hlið hjónaherbergis, bjart og parketlagt, með innbyggðum skáp og glugga til suðurs.

Svefnherbergi II er staðsett á hægri hönd frá anddyri/holi, rúmgott og parketlagt, með innbyggðum skáp og glugga til vesturs.

Pergo harðparket er á öllum parketlögðum rýmum eignarinnar.

Sérgeymsla í sameign er 11,0 fm að stærð (ekki innifalin í birtri fermetrafjölda íbúðar) og er hún staðsett í kjallara hússins. Gluggi er í geymslu.

Í sameign eru sameiginlegt þvottahús, hjólageymsla og salerni. Sameiginleg bílastæði eru við húsið og garður bakatil.

Viðhald og endurbætur húss:

- Eldvarnarhurðir í stigagangi endurnýjaðar

- Gluggar endurnýjaðir í allri húseign

- Nýleg rafmagnstafla í sameign

- Þak tekið í gegn ásamt þakrennum og járni

- Grunnvatnslagnir yfirfarnar og fóðraðar 2018

Yfirlit framkvæmda:

2007–2008: Múrviðgerðir og húsið endursteinað að utan

2014: Skólplagnir fóðraðar að fullu (myndaðar aftur 2024 – ekki talin þörf á viðhaldi)

2018–2019: Þak, nýjar þakrennur, skipt um bárujárn og þakpappa, loftun aukin

2019: Allir gluggar og gler endurnýjuð, allar útihurðir nema aðalinngangur stigagangs

2019: Svalir, vatnsbretti og annað ytra byrði yfirfarið og málað

2022: Kyndiklefi og lagnir endurnýjaðar að stórum hluta

2023: Rafhleðslustöðvar settar upp

2024–2025: Sameiginleg sorptunnuskýli sett upp með snjóbræðslu; hluti bílastæðis endurmalbikaður

2025: Girðing sett upp á tveimur hliðum lóðar

2025: Stigagangur og sameign gerð upp, málað, skipt um teppi og póstkassa, handrið lagfært og þvottahús málað

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir

Guðmundur Hallgrímsson Löggiltur fasteignasali í síma 898-5115 / Gudmundur@fastlind.is

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.

-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaup), 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Lántökugjald af veðskuldabréfi mishátt milli lánastofnuna. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu 74.900,

Kort af Eskihlíð 6B

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð