HÚSASJÁ

Smyrilsvegur 29

18-0101 · 107 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
36 myndir

114 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1990

Byggingarár

3365 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



24 dagar á sölu

sell

107.500.000 kr

942.156 kr/m²

Smyrilsvegur 29 - Um er að ræða snyrtilega 3ja herbergja íbúð í rólegu og viðhaldsléttu fjórbýlishúsi, með sér inngangi og verönd. Íbúðin er skráð 114,1 fm að stærð samkvæmt fmr.

Afar góð staðsetning, í hjarta Vesturbæjar. Íbúðin er í göngufjarlægð við alla helstu þjónustu (Háskóla Íslands, leik- og grunnskóla, matvöruverslanir, bakarí, veitingastaði, kaffihús, sundlaug, útivistarsvæði o.fl.).

Falleg eign sem vert er að skoða, með rúmgóðri verönd. Húsið var allt málað að utan síðasta sumar. Sérmerkt stæði er við húsið þar sem sett hefur verið upp ný hleðslustöð sem tilheyrir íbúðinni.

Húsið var teiknað af Guðmundi Gunnlaugssyni, arkitekt og byggt árið 1990.

Nánari lýsing: Gengið er inn um sérinngang. Í forstofunni eru flísar á gólfi og innbyggðir hvítir fataskápar. Innaf forstofu er góð geymsla með hillum og glugga og einnig þvottaherbergi með glugga.

Flísalagt baðherbergi með sturtu, baðkari og fínni innréttingu, gluggi er á baðinu. Bjart opið rými sem samanstendur af borðstofu og stofu.

Úr stofunni er útgengt út á verönd. Eldhús er með góðu U laga vinnuplássi og borðkrók. Sjónvarpshol í miðju íbúðar. Bæði svefnherbergin eru rúmgóð, með innbyggðum fataskápum og sérsniðnum myrkvunargardínum

Nánari upplýsingar veitir:

Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.

www.facebook.com/asfasteignasala

www.instagram.com/as_fasteignasala

www.as.is

Kort af Smyrilsvegur 29

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð