Tómasarhagi 57
01-0001 · 107 Reykjavík



11 dagar á sölu
82.900.000 kr
895.248 kr/m²
Borg fasteignasala kynnir: Vel skipulagða, lítið niðurgrafna 3ja herbergja íbúð við Tómasarhaga 57, með sérinngangi á eftirsóknarverðum stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Um er að ræða mikið uppgerða eign þar sem áhersla hefur verið lögð á snyrtilegt og nútímalegt útlit. Eignin skiptist í anddyri, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og sameiginlegt þvottahús. Fjórar íbúðir eru í húsinu, ein á hverri hæð. Stór og fallega gróinn garður.
Tómasarhagi 57 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 202-8106, birt stærð 92.6 fm.
Nánari lýsing:
Andyri: Rúmgott og flísalagt.
Stofa: opið og bjart rými með útsýni út í garð. Plast parket á gólfi
eldhús: Stílhreint eldhús með sérsmíðaðri innréttingu frá Sérverk, góðu skápaplássi og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Hjónaherbergi: Rúmgott með nýlegum fataskáp og plast parket á gólfi
Barnaherbergi: Plast parket á gólfi.
Baðherbergi: Innrétting með vaski, speglaskáp, upphengdu salerni, "walk in" sturtu og handklæðaofni. Fallegar flísar á gólfi og hluta veggja.
geymsla: innan íbúðar
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er í kjallara, hver með eigin þvottavél.
Samkvæmt upplýsingum frá eiganda hafa verið gerðar endurbætur á eigninni, að hluta eða í heild, á eftirfarandi:2024 - Eldhúsinnrétting2024 - Uppþvottavél2024 - Ísskápur2024 - Ofn2024 - Baðherbergi:2024 - Innrétting2024 - Flísar2024 - Klósett2024 - Blöndunartæki2024 - Leiðslur fyrir heitt og kalt vatn2024 - Ofnakerfi í íbúðinni2024 - Hurðar ásamt eldvarnarhurð2024 - Parket2024 - Parketlistar2024 - Flísar2024 - Fataskápur settur upp í svefnherbergi2021 - Skólplagnir
Frábær staðsetning og stutt í alla þjónustu. Stutt í leikskóla, grunnskóla og leikvellir allt í kring. Í göngufæri er Háskóli íslands, Þjóðarbókhlaðan, Vesturbæjarlaug, Melabúðin og Kaffivest.
Nánari upplýsingar veitir
Victor Levi R. Ferrua, löggiltur fasteignasali, í síma 868 2222 - victor@fastborg.is
Gunnlaugur Þráinsson Lögg. fasteignasali, í síma 844 6447 - gunnlaugur@fastborg.is.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af fasteignamati.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna













