HÚSASJÁ

Melhagi 9

01-0201 · 107 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
37 myndir

142 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1950

Byggingarár

499 m²

Lóð

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Auka íbúð



30 dagar á sölu

sell

134.800.000 kr

949.296 kr/m²

Hannes Steindórsson kynnir með stolti:

Algerlega endurnýjaða hæð með uppgerðum 39 fm bílskúr/Aukaíbúð og sér bílastæði á vinsælum stað við Melhaga 9 107 Reykjavík.

Búið að endursteina, skipta um pappa og járn á þaki, skipta út skolplögnum og dreni, neysluvatnslögnum, skipt um glugga og gler, svalahurð, rafmagn ídregið og ný tafla.

Að innan, öll gólfefni, hurðir, eldhús baðherbergi öll tæki og meira til.

Þak, vatnslagnir og rafmagn í bílskúr, settir gluggar og hurð og bílskúr breytt í lítið hús/íbúð.

Sameiginlegur inngangur með risi, mjög snyrtilegur, bjartur með mikilli lofthæð og fallegum bogadregnum stiga. Stór skápur/geymsla fyrir framan inngang í íbúð.

Ath: tvö svefnherbergi í íbúð.

Forstofa/Hol: Parketlagt og bjart hol í miðju íbúðar.

Stofa: Rúmgóð og björt parketlögð stofa með fallegum gluggum.

Borðstofa: Björt parketlögð borðstofa við hlið stofu,tvöföld frönsk hurð opnast út á svalir.

Svefnherbergi 1: Mjög stórt parketlagt svefnherbergi með miklu skápaplássi.

Svefnherbergi 2: Parketlagt rúmgott svefnherbergi með skápum.

Eldhús: Rúmgott eldhús með fallegri hvítri HTH innréttingu og skápum, vönduðum AEG tækjum mikið borð og skápapláss, gert ráð fyrir tvöföldum amerískum ísskáp.

Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með stórri sturtu með glerskilrúmi og innbyggðum blöndunartækjum, hvít innrétting með fallegri handlaug, gluggi á baði.

Sameign: Rúmgott snyrtilegt sameiginlegt þvottahús.

Geymslur: Sér geymsla í sameign ásamt rúmgóðri geymslu við bílskúr.

Aukaíbúð/Bílskúr: Þrjátíu og níu fm bílskúr sem búið er að endurnýja og breyta í litla íbúð með sérinngangi.

Forstofa: Parketlögð forstofa.

Stofa: Parketlögð stofa við glugga.

Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með sturtu og handlaug

Svefnherbergi 3: Parketlagt svefnherbergi með stórum glugga..

Bílskúr er parketlagður, með eldhúsi, baðherbergi, stofu og svefnherbergi. Góð leigueining eða tvö sér herbergi ásamt eldhúsi og baðherbergi.

Allar upplýsingar veitir : Hannes Steindórsson s.699-5008 hannes@fastlind.is

Kort af Melhagi 9

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu