Melhagi 17
01-0201 · 107 Reykjavík



244 dagar á sölu
113.500.000 kr
953.782 kr/m²
*OPIÐ HÚS FÖSTUDAGINN 13.FEBRÚAR KL 12:30-13:00*
Móeiður Svala lögg. fasteignasali og Miklaborg kynna í einkasölu: Melhaga 17 - Björt og afar vel skipulögð 5 herbergja hæð í vel viðhöldnu fjórbýlishúsi á besta stað í Vesturbænum.
Eignin er 119 fm með þremur svefnherbergjum, opnu og björtu alrými og tvennum svölum sem snúa bæði til suðurs og norðurs. Byggingaréttur fyrir bílskúr fylgir. Einstök staðsetning í hjarta Vesturbæjar, þar sem allt er í göngufæri.
Eignin er laus við kaupsamning!
Allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 899-8278 eða moa@miklaborg.is
Nánari lýsing: Komið er inn í rúmgóða og bjarta eign þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda fallegt og opið alrými. Stórir gluggar til suðurs og vesturs tryggja mikla birtu.
Úr borðstofu er gengið út á stórar suðvestursvalir sem njóta sólar stóran hluta dags og fram á kvöld.
Eldhús er stórt og bjart, opið við borðstofu, með fallegri eikarinnréttingu og góðu skápaplássi. Stór gluggi snýr til vesturs.
Svefnherbergin eru þrjú. Hjónaherbergið er rúmgott, með góðu skápaplássi og útgengi á svalir til norðausturs. Tvö barnaherbergi eru björt og með stórum gluggum.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2021, er flísalagt með walk-in sturtu, speglaskáp og hvítri innréttingu með nægu geymsluplássi.
Parket er á öllum gólfum íbúðarinnar nema á baðherbergi.
Byggingaréttur fyrir bílskúr fylgir eigninni, sem er verulegur kostur á þessu eftirsótta svæði.
Geymslur og sameign
Tvær sérgeymslur fylgja íbúðinni:
Sérgeymsla I: 3,6 fm, staðsett á 3. hæðSérgeymsla II: 3,5 fm, staðsett í kjallaraSameiginlegt þvottaherbergi er í kjallara með lakkað gólfi, sér tenglum fyrir hverja hæð, þvottasnúrur og gluggum til norðausturs.
ATH: Upprunaleg teikning af íbúð.
LóðLóðin er fullfrágengin og fallega ræktuð, sameiginleg með öðrum eignarhlutum hússins.
Viðhald og endurbætur (samkvæmt eiganda)Ný rafmagnstafla í sameign (lok 2025)Niðurfall/aðalstammi hreinsaður og myndaður (lok 2025). Verktaki telur að skipta þurfi um hluta lagna síðarNý gólfefni (2022)Nýjir gluggar, þak og baðherbergi (2021)
StaðsetningEinstaklega eftirsótt staðsetning í Vesturbænum, örstutt í alla helstu verslun og þjónustu, m.a. Melaskóla, Hagaskóla, Vesturbæjarlaug, kaffihús, bakarí og íþróttasvæði KR.
Allar nánari upplýsingar veitir
Móeiður Svala lögg. fasteignasali
Sími: 899-8278
Netfang: moa@miklaborg.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna




















