Reynimelur 44
01-0202 · 107 Reykjavík



25 dagar á sölu
62.900.000 kr
1.037.954 kr/m²
REYNIMELUR 44 - FALLEG 2JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á 2. HÆÐ Í GÓÐU OG MIKIÐ ENDURNÝJUÐU FJÖLBÝLISHÚSI Á GÓÐUM STAÐ Í VESTURBÆNUM -
ÍBÚÐIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMNING.
Birt stærð eignarinnar hjá HMS er 60,6 fm og þar af er geymsla í kjallara skráð 1,3 fm.
Komið er inn í hol/gang með parketi. Innst í ganginum er skápur með fatahengi.
Eldhús með dúk á gólfi, viðarinnréttingu með nýlegum tækjum, AEG blástursofni, SAMSUNG spanhelluborði með viftuháf yfir, ELECTROLUX uppþvottavél og SAMSUNG ísskáp.
Baðherbergið er með dúk á gólfi og flísum við baðkar. Þar er góð hvít innrétting með miklu skápaplássi, gluggi og tengi fyrir þvottavél. Nýleg sambyggð þottavél og þurrkari frá SAMSUNG fylgir.
Björt og góð stofa með parketi og fallegum hornglugga.
Rúmgott svefnherbergi með parketi, fataskápum sem ná alveg upp í loft og útgengi út á svalir sem snúa í austur og suður.
Nýleg "screnn" rúllugluggatjöd frá Álnabæ eru í stofu og eldhúsi. Nýlegur dyrasími.
Í kjallara er sér geymsla og sameiginlegt þvottahús.
Stór og falleg lóð með grasflöt og hellulagðri verönd.
Húsið hefur fengið mjög gott viðhald og eftirfarandi eru þekktar viðhaldsupplýsingar:
2022:
Húsið múrviðgert og sílanborið.
Niðurfallsrör og þakrennur endurnýjaðar.
Gluggar viðgerðir og að hluta endurnýjaðir. Skipt um öll opnanleg fög.
Þak og tréverk málað.
2023:
Skólplagnir endurnýjar og drenað í krngum húsið.
2024:
Garður tekinn í gegn, sett nýtt gras og lóð hellulögð að hluta.
2025:
Húsið endursteinað og skipt um niðurfall á svölum efstu hæðr.
Einnig hefur rafmagnstafla í sameign verið endurnýjuð.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Einar Guðmundsson
Lögg. fasteignasali
s. 896-8767
einar@egfasteignamidlun.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir



























