Víðimelur 32
01-0001 · 107 Reykjavík



43 dagar á sölu
240.000.000 kr
898.540 kr/m²
Borg fasteignasala kynnir Víðimel 32, Reykjavík í hjarta Vesturbæjar.
Við Víðimel 32 í Reykjavík stendur glæsileg, heilstæð húseign í einu vinsælasta og eftirsóttasta hverfi borgarinnar. Um er að ræða steinsteypt hús byggt árið 1939, með kjallara og tveimur íbúðahæðum. Á lóð eru bílskúr og sér geymsluskúr sem bæði hafa verið innréttuð sem íbúðarrými. Húsið er sambyggt Víðimel 30.
Eignin býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika – hvort sem leitað er að fjölskyldueign eða fjárfestingartækifæri en um er að ræða fjölbýli með góðum tekjumöguleikum. Ytra byrði hússins hefur fengið gott viðhald en það hefur nýlega verið endursteinað og settir nýir gluggar á allt húsið. Lóðin er snyrtileg með hellulögðu bílaplani fyrir eina bifreið. Á bílaplani hefur verið nýlega verið komið fyrir snjóbræðslukerfi.
Nánari lýsing:
Kjallari – Eign merkt 0001 (55,8 fm)
Kjallaraíbúðin er skráð 55,8 fm og samkvæmt teikningum samanstendur hún af salerni, eldhúsi með eldri innréttingu, stofu og svefnherbergi.
Í dag er hluti sameignar nýttur með íbúðinni og hefur verið útbúið rými með fjórum svefnherbergjum, tveimur salernum og eldhúsi.
1. hæð – Eign merkt 0101 (73,9 fm)
Björt og vel skipulögð íbúð á 1. hæð, skráð 73,9 fm samkvæmt HMS.
Sameiginlegur inngangur er með efri hæð.
Hún skiptist í:
- Forstofuhol með parketi
- Stofu með parketi
- Tvö rúmgóð svefnherbergi með parketi
- Baðherbergi með flísum, sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél
- Eldhús með fallegri viðarinnréttingu, góða skápaplássi og borðkrók
2. hæð – Eign merkt 0201. Hluti eignar er bílskúr og geymsluskúr (alls 137,4 fm)
Íbúð á 2. hæð (73,1 fm)
Rúmgóð og björt íbúð á efstu hæð hússins. Hún skiptist í:
- Gangur með parketi
- Forstofuhol með parketi
- Stofu með parketi
- Tvö svefnherbergi með parketi
- Baðherbergi með flísum, sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél
- Eldhús með fallegri viðarinnréttingu, góða skápaplássi og borðkrók.
- - Eldhús og baðherbergi voru endurnýjuð fyrir um fimm árum síðan, samkvæmt upplýsingum seljanda.
Bílskúr – innréttað stúdíó (25,9 fm)
Bílskúrinn hefur verið endurbættur og innréttaður sem stúdíóíbúð. Þar er alrými með parketi og eldhúsaðstöðu, auk baðherbergis með sturtu.
Mannvirki á baklóð – innréttað íbúðarrými (38,4 fm)
Mannvirki á baklóð hefur einnig verið innréttað sem íbúðarrými. Þar er gólfhiti. Rýmið skiptist í alrými með flísum og eldhúsinnréttingu, baðherbergi með sturtu og sér svefnherbergi.
Framkvæmdir og viðhald
Til viðbótar því að húsið var endursteinað, gluggar endurnýjaðir og ný stétt sett í kringum húsið þá var á árunum 2024-2025 gerðar endurbætur á frárennsliskerfi og sett snjóbræðslukerfi. Nýja frárennsliskerfið þjónar öllu húsinu að undanskildu salerni og eldhúsi í kjallara. Lagnaaðstaða er þó til staðar fyrir tengingu þess við nýja kerfið. Endurnýjað frárennsliskerfi nær út í gangstétt. Auk þess voru gerðar endurbætur á efri tveimur hæðum, nýjar hitalagnir lagðar í kjallara og efri hæð árið 2020. Hitalagnir í lagnarými í kjallara voru endurnýjaðar og komið fyrir varmaskiptakerfi fyrir heitt neysluvatn á öllum hæðum og útirýmum.
Kostir hverfisins – Vesturbærinn í stuttu máli
Víðimelur er hluti hins vinsæla og rótgróna Vesturbæjar. Götumyndin er falleg, umhverfið er rólegt og stutt í þjónustu, skóla og útivist. Aðeins stutt ganga er í Melaskóla, Hagaskóla, Vesturbæjarlaug, Kaffi Vest, Háskóla Íslands og Háskólabíó. Góðar gönguleiðir eru í hverfinu.
Rólegt og fjölskylduvænt – rólegar íbúðargötur, mikið af trjám og gróðri og góður andi í hverfinu.
Vaxtar- og tekjumöguleikar. Fjölbreytt rými í húsinu. Það hentar vel fyrir útleigu eða stóra fjölskyldu.
Öflug samfélagsmynd – Vesturbærinn er þekktur fyrir að vera hlýlegt og skemmtilegt samfélag, þar sem allt er innan seilingar.
Nánari upplýsingar um eignina veita Brandur Gunnarsson löggiltur fasteignasali-löggiltur leigumiðlari, sími 897-1401 og netfang brandur@fastborg.is og Ingimar Ingimarsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, sími 861-8458 og netfang ingimar@fastborg.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% fyrstu kaup, 0,8% síðari kaup, 1,6% lögaðilar. Prósentan er af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir



































