HÚSASJÁ

Sörlaskjól 18

01-0101 · 107 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
23 myndir

238 m²

Stærð

8

Herbergi

5

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

1947

Byggingarár

466 m²

Lóð

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



37 dagar á sölu

sell

245.000.000 kr

868.486 kr/m²

Eignamiðlun kynnir:

Mjög fallegt samtals 282,1 fm einbýlishús við Sörlaskjól 18 í Vesturbænum. Tvöfaldur bílskúr, 42,9 fm. Húsið skiptist m.a. í tvær samliggjandi stofur, eldhús, fimm herbergi og þrjú baðherbergi. Auk þess hefur verið innréttuð stúdíóíbúð í kjallara. Svalir til suðvesturs. Gróinn garður með nýlegri timburverönd.  Mjög stórt bílaplan er fyrir framan bílskúr. Frábær staðsetning í Vesturbænum örstutt frá sjávarsíðunni. Stutt í verslanir, sundlaug, kaffihús og fl.

NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA: Magnea S. Sverrisdóttir lg. fasteignasali s. 861 8511, magnea@eignamidlun.is og Sverrir Kristinsson lg. fasteignasali

Nánari lýsing.

Aðalhæð:

Aðalhæð skiptist í forstofu, tvær stofur, eldhús, herbergi, baðherbergi og hol. Komið er inn í flísalagða forstofu með skápum. Tvær rúmgóðar samliggjandi parketlagðar stofur. Mjög falleg tvöföld svalahurð. Svalir til suðvesturs. Hægt er að ganga út í garð frá svölum. Falleg sérsmíðuð eikarinnrétting er í eldhúsi. Helluborð með gasi. Háfur úr stáli. Gólf er flísalagt. Mjög rúmgott parketlagt herbergi (tvö herbergi samkvæmt teikningu). Baðherbergið er flísalagt og með baðkari. Gluggi er á baðherbergi.

Rishæð:

Rishæð skiptist í opið parketlagt rými og rúmgott parketlagt hjónaherbergi með skápum. Möguleiki væri að breyta skipulagi í risi en samkvæmt teikningu eru þrjú herbergi í risi.

Kjallari:

Sér inngangur er í kjallara en einnig er innangengt frá holi. Í kjallara eru tvö rúmgóð parketlögð herbergi, baðherbergi með sturtu, þvottahús, geymsla og hol. Einnig hefur verið innréttuð lítil stúdíóíbúð með sér baðherbergi. Baðherbergi í kjallara voru endurnýjuð fyrir um 5 árum síðan.

Mjög falleg eign á eftirsóttum stað í Vesturbænum.

***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Kort af Sörlaskjól 18

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu