Flyðrugrandi 10
01-0414 · 107 Reykjavík



30 dagar á sölu
59.900.000 kr
1.101.103 kr/m²
***EIGNIN ER SELD, ER MEÐ KAUPENDUR Á SKRÁ SEM ERU AÐ LEITA AÐ SAMBÆRILEGU HÚSNÆÐI. HAFÐU SAMNBAND Í SÍMA: 820-9322***
LIND fasteignasala og Páll Konráð kynna í einkasölu: Glæsileg 2ja herbergja, 54,4 fm íbúð á 4. hæð ( 2 hæðir frá götu ) á þessum vinsæla stað í Vesturbæ Reykjavíkur.
Íbúðin skiptist í baðherbergi, svefnherbergi, stofu og eldhús. Sérgeymsla í sameign.
Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is.
- Baðherbergi endurnýjað, walk-in sturta með innbyggðum blöndunartækjum af gerðinni GROHE, upphengt salerni og ný innrétting.
- Viðarparket í alrými og herbergi frá PLANKI.IS
Nánari lýsing: Komið er inn í opið rými, þar er opin forstofuskápur. Eldhúsið og stofa eru samliggjandi og er eldhúsið með hvítri innréttingu. Gengið er út á stórar svalir út frá stofu. Parket á gólfi í alrými. Svefnherbergið er rúmgott með parketi á gólfi. Baðherbergið er nýuppgert með innbyggðum blöndunartækjum, flísalagt í hólf og gólf. Nýleg baðinnrétting, vaskur og blöndunartæki.
Sameiginlegt þvottahús á hæðinni sem þrjár íbúðir deila.
Sérgeymsla íbúðar er í sameign í kjallara ásamt hjóla- og vagnageymslu.
Sauna, sturta og salerni er á efstu hæð og er sameiginlegt en þarfnast lagfæringar.
Stigagangur snyrtilegur og sameignin til fyrirmyndar.
Nýlegar endurbætur: Nýlega voru gluggar og svalahurð endurnýjað og svalir flotaðar og málaðar. Fyrir um 3 árum var húsið yfirfarið að utan og málað. EFLA sá um eftirlit framkvæmda. Rafhleðslustöðvar eru á bílastæði.
Eignin er frábærlega vel staðsett í vesturbænum, steinsnar frá íþróttasvæði KR við Frostaskjól, auk þess sem leik- og grunnskólar, Háskóli Íslands og fjölbreytt þjónusta er í nágrenninu.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Páll Konráð, löggiltur fasteignasali, sími 820-9322, pall@fastlind.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna























