HÚSASJÁ

Aflagrandi 28

01-0101 · 107 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
43 myndir

192 m²

Stærð

2

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1993

Byggingarár

1006 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla

Heitur pottur



1 dagar á sölu

sell

185.000.000 kr

962.038 kr/m²

Betri Stofan fasteignasala kynnir til sölu: Virkilega skemmtilegt, bjart og vel skipulagt endaraðhús á tveimur hæðum auk herbergis í risi. Fallegur suðurgarður með timburveröndum með skjólveggjum og heitum potti.

Eignin Aflagrandi 28 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 202-5322, birt stærð 192.3 fm.

Eignin skiptist í: Forstofu, gestasalerni, eldhús, stofu, borðstofu, 4 svefnherberg, sjónvarpshol, baðherbergi og bílskúr. Þak var endurnýjað árið 2023. Garður allur tekinn í gegn árið 2021 og innrétting eldhús 2020.

EIGNIN GETUR VERIÐ LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.

Nánari lýsing. Jarðhæð:

Forstofa með flísum á gólfi og fataskápum.

Gestasalerni með flísum á gólfi. Opnanlegur gluggi.

Eldhús með parketi á gólfi og fallegri nýlegri innréttingu. Útgengt til norðurs út á timburverönd með skjólveggjum.

Stofa - borðstofa með með parketi og útgengi út í fallegan afgirtan garð til suðurs með timburverönd með skjólveggjum og heitum potti.

Geymsla undir stiga.

Bílskúr með með rennandi heitu og köldu vatni og nýlegri bílskúrshurð. Útgengt út á suðurpall

2.Hæð:

Tvö barnaherbergi með parketi á gólfi.

Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataherbergi með glugga innaf hjónaherbergi. Útgengi út á suður svalir.

Sjónvarpsstofa ( sem hægt er að breyta í svefnherbergi ) með fallegum stórum gluggum sem gefa fallega birtu í rýmið, parketi á gólfi.

Baðherbergi með flísum á gólfi og að hluta til á veggjum. Ágætis innrétting. Baðkar með sturtuaðstöðu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Handklæðaofn.

Rishæð:

Stórt herbergi undir súð með parketi á gólfi. Góðir velux gluggar sem gefa herberginu fallega birtu.

Nánari upplýsingar veitir Páll Þórólfsson , í síma 8939929, tölvupóstur pall@betristofan.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Aflagrandi 28

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð