HÚSASJÁ

Grandavegur 47

08-0705 · 107 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
21 myndir

66 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1989

Byggingarár

3738 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



12 dagar á sölu

sell

62.500.000 kr

949.848 kr/m²

Helgafell fasteignasala kynnir til sölu tveggja herbergja útsýnisíbúð á sjöundu hæð í lyftuhúsi við Grandaveg 47, 107 Reykjavík.

Íbúðin er skráð 65,8 fm samkvæmt HMS. Til viðbótar er um 5 fm sérgeymsla í kjallara sem ekki er talin með í birtri stærð eignarinnar.

Skipulag eignar er eftirfarandi: Anddyri, baðherbergi, eldhús, þvottahús/búr, hol, svefnherbergi og stofa með útgengi á yfirbyggðar svalir með miklu útsýni.

Í húsinu er aðgangur að sameiginlegum veislusal á efstu hæð með miklu útsýni. Á jarðhæð er aðstaða fyrir íbúa, þar á meðal saunaklefi, heitur pottur og sturtur.

Eignin er ætluð 60 ára og eldri og þurfa kaupendur samkvæmt áhvílandi kvöð á eigninni að vera í Félagi eldri borgara (www.feb.is)

Nánari lýsing

Anddyri: Parket á gólfi og tvöfaldur fataskápur.

Stofa: Harðparket á gólfi. Gluggar á tvo vegu, þar af einn gólfsíður. Útgengt er á yfirbyggðar svalir.

Eldhús: Harðparket á gólfi. Upprunaleg og vel við haldin eldhúsinnrétting með flísum á milli efri og neðri skápa. Ofn í vinnuhæð og span helluborð. Pláss er fyrir uppþvottavél og borðkrókur við glugga.

Þvottahús/búr: Inn af eldhúsi. Vaskur, hillur, tengi fyrir þvottavél og pláss fyrir þurrkara. Epoxíð á gólfi og gluggi með opnanlegu fagi.

Svefnherbergi: Harðparket á gólfi og þrefaldur fataskápur. Stór gluggi með opnanlegu fagi.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Sturtuklefi og innrétting með skápaplássi.

Geymsla: Sérgeymsla í kjallara, um 5 fm, ekki talin með í birtri stærð eignar.

Sameign:

Sameign er vel um gengin og eru tvær lyftur í húsinu.

Íbúar hafa aðgang að veislusal með miklu útsýni á efstu hæð.

Á jarðhæð er líkamsræktaraðstaða, nýlegur heitur pottur og sauna.

Húsvörður er starfandi í húsinu.

Samkvæmt eiganda þá er verið að breyta eignaskiptasamningnum fyrir eignina og verður þá geymslan partur af séreign og bætist við fermetratölu eignarinnar.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:

Helgafell fasteignasala ehf. - Sími: 566 0000

Rúnar Þór Árnason, lghf., runara@helgafellfasteignasala.is

----------------------------------------------------------

Heimasíða Helgafells fasteignasölu

Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.

4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Kort af Grandavegur 47

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu